Hrossakaup vinstri flokkanna í Hafnarfirði staðfest.

Það er vissulega fáránleg útgáfa af lýðræðinu að maður sem ekki komst inn í kjöri verði síðan ráðinn bæjarstjóri, alveg sama hvort hann heitir Lúðvík eða eitthvað annað sem og hvort sá hinn sami var bæjarstjóri áður eða ekki.

Hér er um að ræða sömu flokka og ráða í ríkisstjórn landsins, vinstri flokka Samfylkingar og VG, en Sjálfstæðisflokkurinn fékk 5 menn kjörna eins og Samfylkingin, og VG 1 mann.

Framsóknarflokkinn vantaði 15 atkvæði til að ná sínum manni inn, meðan á sjötta tug atkvæða vantaði til þess að Lúðvík kæmist inn.

kv.Guðrún María.


mbl.is Lúðvík áfram bæjarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Þetta hrein og bein spilling 1 +5 + bæjarstjóri gera 7 það er spilling.

Rauða Ljónið, 8.6.2010 kl. 00:19

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já flokkarnir hafa afhjúpað vilja sinn til þess arna.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.6.2010 kl. 00:29

3 identicon

Lúðvík vantaði 366 atkvæði til að komast inn, svo hann var hvergi nærri...

Jóhanna Fríða Dalkvist (IP-tala skráð) 8.6.2010 kl. 08:24

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir þær upplýsingar Jóhanna, hef eitthvað misheyrt.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.6.2010 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband