Mótmæli við flokksskrifstofur og Alþingi eru réttlætanleg, annað ekki.

Ég get ekki séð tilgang mótmæla við heimili fólks sem tekur þátt í stjórnmálum, því miður þar tel ég tilgang ekki helga meðalið, nema síður sé, nákvæmlega sama hvaða flokki viðkomandi tilheyrir.

Reiði fólks er skiljanleg en í Guðanna bænum látið þá hina sömu reiði í ljós utan friðhelgi heimila fólks, sem tekur þátt í stjórnmálum.

kv.Guðrún María.


mbl.is Mótmælt við heimili þingmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er varla hægt að segja að þetta séu mótmæli með einhverjum látum, þú? Þarna er hins vegar um að ræða stuðningshóp er óskar eftir því að Steinunn Valdís segi af sér þingmennsku.

Þá vil ég hérna benda þessum lögreglumönnum er benda aftur og aftur á börnin, að þeim beri einnig að virða friðhelgi heimilisins og einkalífs okkar skuldara algjörlega, og munið að öll mótmæli lögreglu fyrir ínnan og utan heimili fólks, svo og að fara inn á heilimili fólks til þess að henda fólki (skuldurum) út á götu eru bönnuð, þar sem slíkt varðar friðhelgi einkalífsins, auk þess og /eða eins og þið hafið réttilega bent á þá hræðir slíkt börn okkar.  

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.4.2010 kl. 01:38

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Ég er á því að heimilið á að vera griðland en ég skil vel gremju fólks sem hefur misst sitt grið-og friðland vegna spillingar ákveðinna einstaklinga. Nú er ég ekki þess umkomin að dæma hverjir skuli búa við þetta ástand og hverjir ekki en vonandi er fólk sem heldur úti þessum heimsóknum að einkaheimilum pólitíkusa bæði hljóðlátt og friðsamlegt og í þögulu ákalli um afsagnir en hræðir ekki heimilisfólk. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 21.4.2010 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband