Ingibjörg Sólrún skynjar vilja þjóðarinnar, betur en ráðamenn varðandi Esb.

Það er fátt annað en skynsemi að leggja það til að fresta aðildarviðræðum við Evrópusambandið undir þeim kringumstæðum sem uppi eru og afar ánægjulegt að sjá það koma fram hjá fyrrum formanni Samfylkingarinnar.

Össur virðist hins vegar til í það að enda á toppi bifreiðar sem föst er í ánni svo kalla þarf til björgunarsveitir til þess að bjarga úr klandrinu.

kv.Guðrún María.


mbl.is Fast skot á Össur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Já, en mér finnst það bara ekkert lofsvert þótt reyndur pólitíkus sanni það fyrir sjálfum sér og öðrum að hann/hún sé ekki blint og heyrnarlaust flón.

Verra reyndar að skynja hversu átakanlega margir í þeim hópi eru flón.

Árni Gunnarsson, 11.4.2010 kl. 08:52

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ingibjörg er tækifærissinni eins og Össur og þetta kratalið Guðrún.
Hins vegar er umhugsunarvert hvað mikill minnihlutahópur eins og ESB-
sinnar virðist enn ráða för í einu stærsta pólitíska hitamáli lýðveldisins.
Og af því er visðist í boði Vinstri grænna!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.4.2010 kl. 20:54

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Eru þeir einhverjir sem skynja það verr en ríkisstjórnin?

Ólafur Ingi Hrólfsson, 12.4.2010 kl. 02:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband