Fyrsta íslenzka þjóðaratkvæðagreiðslan um lög frá Alþingi, fyrstu skrefin að virku lýðræði.

Fyrir okkur Íslendinga er það stór stund á laugardaginn að fá í fyrsta skipti að segja skoðun okkar á lögum sem almenningur í landinu er mótfallin og forseti hefur vísað í þjóðaratkvæði.

Því meiri sem þáttaka almennings verður í þessari atkvæðagreiðslu því betra.

Lifi lýðræðið.

kv.Guðrún María.


mbl.is Umboðsmenn já- og nei-fylkinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ef af atkvæðagreiðslunni verður mun ég mæta og segja JÁ

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.3.2010 kl. 00:30

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Fróðlegt viðhorf Hólmfríður, einkum og sér í lagi þar sem mikið vatn hefur runnið til sjávar frá lagasetningunni á Alþingi, en þú ert eigi að síður tilbúin til þess að greiða óráðsíu einkabankastarfssemi erlendis að virðist.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.3.2010 kl. 00:38

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

 

Hólmfríður ég veit að ég er að kljást við ágætismanneskju, en það kemur fyrir þær alveg eins og okkur öll að fá ójöfn skilaboð og skilja þersvegna eftir atvikum rétt eða rangt. 

Manstu 12 mílurnar, þar sem Bretar kröfðust hlutar í auðlind og fóru halloka.  En nú krefjast þeir hlutar í peningum sem við gætum fengið af þessari sömu auðlynd og fara halloka vegna þess að þetta er sama málið.   Ég sé eingan mun á því að gefa auðlindina eða auðin sem hún gefur.

Hrólfur Þ Hraundal, 3.3.2010 kl. 04:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband