Hvers vegna í ósköpunum voru slíkar reglur ekki í gildi ?

Óhjákvæmilega veltir maður því fyrir sér hvar allt regluverk hins meinta fullkomna kerfis er eða hefur átt að vera varðandi mál sem þessi ef fyrst er verið að setja ítarlegri reglur áramótin 2009, 2010.

Frá mínum sjónarhóli séð er það svo að sá sem hefur hið lögbundna hlutverk með höndum í þessu efni, sinnir því ekki varðandi það að fylgja eftir ákveðnum stöðlum sem að sjálfsögðu skyldu gilda um starfssemi sem þessa, því miður.

Útboð verkefna af hálfu hins opinbera hvers eðlis sem er, hlýtur hverju sinni að hafa ramma og eftirlit ekki hvað síst þar sem unnið er að uppbyggingu manneskjunnar.

Það virðist ekki hafa verið fyrir hendi þarna og þeir er bera ábyrgð þar að lútandi skyldu axla þá hina sömu ábyrgð.

kv.Guðrún María.

 


mbl.is Starfsmönnum settar ítarlegar reglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband