Ríkisstjórn landsins ræður ekki við það verkefni að skera niður.
Fimmtudagur, 6. ágúst 2009
Það atriði að hækka skatta í atvinnuleysi er formúla sem einfaldlega gengur illa eða ekki upp, það vita flestir, en skattahækkanir stjórnvalda á vordögum voru verulegar svo ekki sé minnst á ýmis konar skerðingar og endurgreiðslukröfur á hendur elli og örorkulífeyrisþegum sem eru út í hött.
Ýmis konar ofþjónustu og illskilgreinarlegum verkefnum sem hið opinbera hefur komið á á undanförnum áratugum hér á landi má sannarlega víkja til hliðar um tíma, í stað þess að leggja á skatta til þess að viðhalda opinberri þjónustu af sama stigi og afar óheilbrigt er og hefur verið fyrir eitt land lengi.
Tvær rásir Ríkisútvarpsins eru dæmi um eina tegund að ofþjónustu, þar sem auðveldlega mætti færa saman verkefni í eina útsendingu án alls þess mannafla sem þar er að störfum.
Menntun og heilbrigði landsmanna má sannarlega rýna í hvar varðar kostnað hins opinbera og fækkun kennslustunda á grunnskólabörn tel ég ekki að muni skaða þau hin sömu, þótt Kennarasambandið vilji halda stöðugildum eigin félagsmanna.
Verkefni Lýðheilsustöðvar og Lyfjastofnunnar, má færa undir Landlæknisembættið.
Samhæfa þarf heilbrigisstéttir allar, frá heilsugæslu til sérfræðinga, og sjúkrahúsa, þar sem verkefni ríkis og sveitarfélaga eru samtengd í mun ríkara mæli en verið hefur.
Umhverfisstofnun verði lögð niður tímabundið.
Fiskistofa, Siglingamálastofnun og Hafrannsóknastofnum verði færðar undir einn hatt.
Hvers konar nefndir og ráð á vegum hins opinbera á báðum stjórnsýslustigum ríkis og sveitarfélaga lúti endurskoðun hvað varðar það atriði að einungis kjörnir fulltrúar stjórnsýslustiganna sitji þar til ávarðana ásamt því að leggja niður og fækka slíkum nefndum.
Utanríkisþjónusta og sendiráð lúti endurskoðun þar sem fækkun sendifulltrúa tímabundið komi til skoðunar.
Framhaldsmenntun lúti tengingu við þarfir atvinnulífsins, hvað varðar niðurgreiðslu hins opinbera.
Endurskoðun skattkerfis með tilliti til tekjutenginga alls konar, þar sem endurgreiðsluþátt hins opinbera í vaxtabótum og húsaleigubótum skyldi afnema í áföngum.
Fleira mætti telja upp en nóg í bili.
kv.Guðrún María.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Vinstristjórn kommúnista og krata RÆÐUR EKKI VIÐ NEITT enda and-þjóðleg ríkisstjórn, og á því að fara frá NÚ ÞEGAR Guðrún, sbr blogg mitt
í dag!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.8.2009 kl. 00:36
Rétt Guðmundur.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 7.8.2009 kl. 00:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.