NÚ er komið að samstöðu stétta á vinnumarkaði hér á landi.

Það kemur ekki til greina af minni hálfu sem launþega að taka nú á mig skattahækkanir og launalækkun samtímis, sökum þess að verkalýðshreyfing þessa lands hefur ekki verið þess umkomin að standa vörð um kaupmátt launa í formi skattleysismarka sem fylgja skyldu verðlagsþróun.

Nákvæmlega ekki neitt hefur verið að gert til þess að leiðrétta þá hinu sömu stöðu launþega á vinnumarkaði hér á landi, meðan fyrirtæki hafa leikið sér með misvitrar fjárfestingar á erlendri grund.

Sá tími er kominn að greiða sanngjörn laun fyrir vinnu alveg sama hvaða vinnuveitandi á í hlut, þar sem réttlát gjaldtaka fylgir í formi skatta, og hvort sem um er að ræða hið opinbera eða einkafyrirtæki.

Vinnuþáttöku í einu þjóðfélagi þarf að fylgja hvati að slíku og verkalýðsfélög skulu standa vörð um það atriði að sá hvati sé fyrir hendi ellegar þarf þar að skipta um leiðtoga til þess arna.

Þar skiptir engu máli hvort kreppa er til staðar eða ekki, hinn vinnandi maður þarf að geta komist af í einu samfélagi, og greitt skatta, og  fyrirtækin ættu að vera betur í stakk búin , þess að taka á sig minni arðgreiðslur, í kreppu ef eitt þjóðfélag skal vera gangandi til framtíðar.

Nú þurfa stéttir að standa saman hér á landi um þau hin sömu mál.

kv.Guðrún María.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Athyglisverð grein hjá þér......

....en það þýðir víst lítið að "hrópa" EKKI ÉG

Hvað með þær þúsundir sem þegar hafa misst vinnu og eiga varla fyrir mat, hvað þá lánum eða öðrum "lúxus".

Það sleppur "enginn" við kreppuna Guðrún María, hún "bítur" bara dálítið seinna hjá sumum. 

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 10:10

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Páll.

Ef það á alltaf að vera viðkvæðið að það " þýði lítið " að berjast fyrir réttlætinu, ranglætið sé bara svona, þá myndi lítið þokast ekki satt ?

Hver og einn einasti einstaklingur þarf á hverjum tíma að mynda sér skoðun á eigin samfélagi, það hefi ég gert í mörg ár, og mun örugglega gera áfram.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.6.2009 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband