Markaðshyggjuþokumóðan og afleiðingarnar.

Það kemur æ betur í ljós með hverjum degi sem líður , hve innilega sambandslausir sitjandi ráðamenn við stjórnvölinn hafa í raun verið við fólkið í landinu um langan tíma, þar sem fólki hefur verið talin trú að hér væri allt í góðu gengi í þokumóðu þar sem 0,3 % þjóðarinnar lék sér í ævintýralegu Matadorbraski undir formerkjum og með náð stjórnvalda í landinu sem ekki voru þess umkomin að setja né ganga eftir nauðsynlegum leikreglum, heldur dönsuðu með og klöppuðu við hin ýmsu tækifæri.

Á sama tíma og almenningur var rígbundinn við skattagaleiðuna og tvær fyrirvinnur virtust varla nægja til framfærslu fyrir eitt heimili í landinu.

Á sama tíma og alls konar sparnaður á sparnað ofan í þjónustu við almenning birtist í hinum ýmsu myndum, s.s niðurskurði í mannahaldi í lögreglu, við Landhelgisgæslu, í þjónustu við heilbrigði og í þjónustu við menntun.

Var það ekki ljóst að eitthvað var að þegar þurfti að frysta skattleysismörk hins almenna launamanns árið 1995 ?

Hvar var verkalýðshreyfingin ?

Um margt má spyrja en læt þetta nægja í bili.

kv.gmaria.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Sæl frænka.Þetta er góður og réttur pistill hjá þér.Það er rosalegt að skip Gæslunnar og flugvélar eru stoppaðar vegna þess að við fáum ekki olíu,búið að loka reikningnum nema komi neyðarkall þá verður opnað þessvegna eru allir skipverjar að taka út frídaga,veikindadaga og námskeiði.En við mundum vilja frekar sigla,það er eins og Dómsmálaráðherra viti ekki af þessu og þetta fer mjög hljóðlega í allri umræðunni meira að seigja L.Í.Ú. halda kjafti og er þá mikið sagt.

Guðjón H Finnbogason, 21.10.2008 kl. 19:10

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já það er rétt frændi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.10.2008 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband