Þingmenn Frjálslyndra funduðu með flokksmönnum síðdegis.

Ágætur fundur var með þingmönnum okkar Frjálslyndra í Skúlatúni nú siðdegis, þar sem farið var yfir stöðuna í efnahagsmálum þjóðarinnar.

R0010645.JPG

 Guðjón Arnar og Jón Magnússon svöruðu spurningum fundarmanna og málin voru rædd, góður fundur.

 Nokkrar myndir af fundinum.

R0010649.JPGR0010647.JPGR0010650.JPGR0010648.JPGR0010651.JPG

 

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gott að heyra. Ég komst ekki í sláturtíðinni.

Sigurður Þórðarson, 11.10.2008 kl. 00:04

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Gott að þú varst ánægð með fundinn GMaría. Ég var bara ánægð með Jón Braga, hann stóða alveg langt uppúr að mínu mati. Ég var reyndar farin áður en því var svarað hvort Íslands gæti farið að stunda kennitöluflakk en ekki fannst mér sú umræða heillandi. Ég var búin að lesa blöðin sem ES las upp úr og heyra fréttir sem ÁJF var að vitna í. Ég var ekki að fá neitt út úr þessum fundi. Fannst þó  feðgarnir  og nafnarnir frekar góðir að þessu sinni. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.10.2008 kl. 00:13

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Siggi,

Situr þú að sauma keppi ?

Sæl Kolla.

Jón Bragi dró upp mynd af ástandinu afar fróðleg og góð hugleiðing af hans hálfu, eins og hans er lagið.

Mér fannst mjög gott að fá þingmenn á fund til að tjá okkur sýn á stöðu mála og ekki hvað síst að svara spurningum um ýmislegt í þessu sambandi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.10.2008 kl. 00:29

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

GMaría. Þeir svöruðu engu sem ekki hefur verið í fréttum, af því þeir væru bundnir trúnaði, sem þýðir eflaust að eitthvað meira neikvætt er á leiðinni. Svo eru sumir alltaf með sínar söguskýringar eins og það hafi eitthvað með málin að gera í dag, hvað gerðist einhvertíma í andskotanum fyrir áratugum síðan. Sumir fundir eru verri en engir að mínu mati og við Íslendingar eyðum allt of miklum tíma í að tala á fundum. Þetta er nú bara mín skoðun enda þegi ég oftast. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.10.2008 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband