Stjórnvöld um víđa veröld ađ smala krónum og aurum til skjala.
Fimmtudagur, 9. október 2008
Hiđ alţjóđlega hagkerfi í heiminum gengur gegnum vćgast sagt brimgjöf međ tilheyrandi afföllum til handa ţjóđum heims ţar sem fjármálafyrirtćki riđa til falls og ríkisstjórnir reyna ađ bjarga ţví sem bjargađ verđur.
Án efa munu margir ţurfa ađ líta í eigin barm og íhuga hversu frjáls hinn alţjóđlegi fjármálamarkađur hefur veriđ án ađkomu stjórnvalda og hve hátt hefur tekist ađ spenna boga vćntinga hvers konar um verđmćti.
Hversu stór er leikur ímyndarsérfrćđinga í ţessu sambandi hvađ varđar ţađ ađ tala upp gengi hlutabréfa í einstökum fyrirtćkjum og hve mikiđ hefur veriđ hćgt ađ grćđa á ţví ađ nýta sér vaxtamun á gengi gjaldmiđla ?
Hve mikil hefur vitund stjórnmálamanna veriđ um fjármálamarkađinn og tilvist hans í raun ?
Án hefur vitundarleysiđ og trú manna á endalausa hagrćđingu veriđ of mikil, og sökum ţess hlýtur ákveđin uppstokkun ađ eiga sér stađ í stefnumótun til framtíđar ađ loknum ţeim manngerđu hörmungum sem nú eiga sér stađ.
Slíkt er óhjákvćmilegt.
Hins vegar međan menn eru ađ reyna ađ bjarga ţví sem bjargađ verđur í ţessu efni, getur almenningur lítiđ annađ gert en ađ treysta á ţá ađila sem sitja viđ stjórnvölinn og allir sitjandi flokkar á ţingi hafa stutt ađ ţvi leyti ađ veita neyđarlögum stjórnar í landinu brautargengi gegnum Alţingi.
kv.gmaria.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.