Góðir Íslendingar til sjávar og sveita, við róum allir sama sjó.
Laugardagur, 4. október 2008
Það gefur á bátinn en við hverja slíka ágjöf þá er ekki annað að gera en að ausa dallinn, til þess að halda sjó.
Fáir þekkja það betur en Íslendingar hvað sjósókn þýðir við brim og boðaföll í óvissum lendingum við strendur landsins.
Því miður virðist það sem svo að eftir því sem fræðingum hefur fjölgað við að telja fiska hafi fiskum fækkað á Íslandsmiðum, og á það einkum við um þorskinn sem lenti í því blessaður að vera settur í kvóta, fáum til hagsbóta og síst honum sjálfum.
Við höfum siglt um veröld víða og híft upp segl og slakað til skiptis eins og sjómanna er siður, sungið og dansað sitt á hvað, þjóð vorri til velsældar í formi menningar og lista og erum þjóð á meðal þjóða.
Við erum rík, því við eigum þorskinn í sjónum og alla hina fiskistofnanna sem eru sameign okkar Íslendinga, og munu auka okkur þjóðarhag ekki hvað síst þegar menn hafa komist að niðurstöðu um hvað fiskarnir eru margir á miðunum.
Við eigum hvert annað sem er það stærsta og mesta því kærleikurinn er allt, alls staðar og fæst ekki keypt fyrir nokkuð það er mölur og ryð grandar, því skyldum við ekki gleyma.
Ræktum kærleikann og hrósum hvert öðru fyrir vel unnin verk hvar og hvenær sem er og uppskeran mun verða ríkuleg í samræmi við sáningu.
kv.gmaria.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.