Yndisleg helgi í frið og ró undir Fjöllunum.

Við mæðgin fórum austur undir Fjöll um helgina og nutum þess að vera í andaktugri kyrrð og ró.

Skrapp einn rúnt upp að Skógum á laugardaginn og fór í leiðinni framhjá fyrrum menningarsetri sveitarinnar Félagsheimilinu í Skarðshlíð sem greinilega þarfnast verulega húsverndunarátaks að sjá má á þessari mynd sem varð nú all sérstök og ég hélt í fyrstu að ég hefði myndað tröll í fjöllunum en síðar kom í ljós að plastpoki í bilnum hafði speglast þannig að grísinn kom á þak hússins.

R0010456.JPG

Einhvern veginn finn ég til með húsinu og sorglegt að horfa á það í niðurnýðslu sem þessari en allt kostar fjármuni það veit maður og sjálfsagt snýst málið um það hér sem annars staðar.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Húsið er sennilega of illa farið til þess að það borgi sig að gera við það, ungmannafélagið skorti fé og mannskap til að halda því við.  Kannski fannst mönnum óþarfi að ditta að húsinu þegar það voru komin 2 samkomuhús í hreppana. En grísinn er góður:

Ester Sveinbjarnardóttir, 11.8.2008 kl. 00:13

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Ester.

Já allt er þetta spurning um skynsemi í því efni, hvað borgar sig og hvað ekki. Það er nóg að halda við tveimur samkomuhúsum mikil ósköp, en menn gátu ekki komið sér saman um að byggja eitt í þá daga sem án efa hefði þótt óðs manns æði skömmu síðar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.8.2008 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband