Að mönnum skuli detta í hug að fara að troða þéttingu byggðar ofan í gamalgróið hverfi !

Það eru ýmsar hugmyndirnar sem bæjarstjórn Kópavogs er með á takteinum, nú með þéttingu byggðar á Kársnesi.

Það atriði að bjóða íbúum upp á það að umbylta rótgrónu hverfi allt í einu með stórhýsum og íbúafjölda í viðbót, með tilheyrandi bílamagni sem umferðarmannvirki þola illa eða ekki, er stórundarlegt.

kv.gmaria.


mbl.is Samþykkt að auglýsa nýtt Kársnesskipulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það er afskaplega áhugavert hvað margir íbúar annarra byggðarlaga hafa mikinn áhuga á málefnum íbúa Kópavogs. Nú er það Guðrún María Óskarsdóttir úr Hafnarfirði.

"Að mönnum skuli detta í hug að troða þéttingu byggðar ofan í gamalgróin hverfi" er fyrirsögnin, hvað sem það nú þýðir. Þétting byggðar er nánast undantekningarlaust í gamalgrónum hverfum, ný hverfi eru skipulögð annað hvort þétt eða gisin. Það sem mér finnst nú virðingarverðast í þessu afar þunna bloggi, er að einhver úr Frjálslynda flokknum taki upp önnur mál, en snúa að innflytjendum. Annars kallar bloggið bara fram spurningamerki og litla ææ stunu. Spái því að Frjálslyndi flokkurinn verði settur í lítinn skókassa eftir næstu kosningar. Held að það verði afar dreyfð byggð í þeirri geymslu.

Sigurður Þorsteinsson, 16.7.2008 kl. 13:30

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurður.

Svo vill til að Kópavogur er í Suðvesturkjördæmi eins og Hafnarfjörður og ef mér dettur í hug að hafa skoðun á einhverju í Kópavogi, þá viðra ég hana eins og skoðanir á öðru.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.7.2008 kl. 01:17

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sæl Guðrún María

 Mér er mjög vel kunnugt um hvernig kjördæmin eru. Málið snýst bara alls ekki um það. Það eru ákveðin "nær" mál sem fyrst og fremst snúa að íbúum ákveðinna byggðarlaga, sem eðlilegt er að íbúarnir útkljá. Skipulagsmál viðkomandi byggðalaga eru þess vegna fyrst og fremst málefni þeirra. Þegar aðilar eins og þú tekur ekki fram í bloggi að þú sért íbúi í Hafnarfirði að tjá skoðanir þínar um innanbúðarmál í Kópavogi ert þú nánast að villa á þér heimildir. Mér finnst það út frá lýðræðislegri umræðu óviðeigandi. Svona svipað og lauma sér inn á fundi hjá öðrum stjórnmálaflokkum og fara að rífa kjaft. Aftur óviðeigandi.

Hitt er verra, að kynna sér ekki málin áður en maður fer að blaðra um málefni annarra byggðalaga. Ég hef engan hitt sem ekki vill auka íbúamagn á Kársnesi, hef heyrt í þér og þá talar þú sem öfgamanneskja um málefnið. Það vesta við þetta blogg þitt er að það sést úr "mílu fjarlægð" að enginn undirbúningur er á bak við þetta blogg. Þetta er að vera boðflenna í umræðum.

Ef ég skil rétt hefur þú verið í framboði, fyrir Frjálsmyndaflokkinn og þeim mun meiri kröfur eru að einhver undirbúningur, eða skilningur á viðkomandi málefni sé að ræða. Svo var ekki að þessu sinni. Hugsaðu þér að þú hefðir farið inn á þing með þetta viðhorf.

Þú mátt alveg hafa skoðanir á öllu sem þú vilt, og tjá þær. Er mikill stuðningsmaður opins lýðræðis. Lýðræðinu fylgir ábyrgð og hana hefur þú ekki borið að þessu sinni.

Þú getur tekið fyrsta mann á lista Frjálslyndaflokksins í þessu kjördæmi Kolbrúnu Stefánsdóttur þér til fyrirmyndar. Það hefði verið mikill sómi af henni á þingi..  

Þegar við erum á móti einhverjum tillögum, bara af því að hinir koma fram með þær, þá erum við á ákveðnu hallærisstigi. Finnst þér eðlilegt að allar tillögur minnihlutans á þingi séu flestallar felldar? Það sama á ef mótherjar þínir koma fram með einhverjar tillögur, eins og í Kópavoginum og þú ert á móti bara til þess að vera á móti, er það hallærislegt.  

Ég held að bloggið þitt hafi verið sett fram af tveimur ástæðum. Annarri eða báðum:

1. Þú ert ámóti tillögum af því að þær koma frá fulltrúum annarra flokka, eins og í Kópavogi. Þetta er af sömu ástæðu og stjórnarflokkarnir á þingi fella flestar tillögur minnihlutans. Án tillits til hversu góðar þær eru.

2. Bloggið er sett fram af athyglisþörf.

Ég vona að fyrri tillagan sé raunveruleg ástæða, en þá getur þú lært af mistökum þínum. Fór inn á bloggið þitt í dag og var ekki frá því að nýjustu bloggin þín séu komin af þessu plani sem t.d. þetta blogg er á.

Sigurður Þorsteinsson, 20.7.2008 kl. 16:10

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll einu sinni enn Sigurður.

Svo vill til að nákvæmlega það sem ég segi um mál þetta ER MÍN SKOÐUN Á MÁLINU, og tengist fréttt sem birt er hér á mbl og fólki er leyfilegt að segja sína skoðun á.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.7.2008 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband