Hvað á að líða langur tími þar til endurskoðun kvótakerfis sjávarútvegs hefst ?

Núverandi ríkisstjórnarflokkar Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hafa tilkynnt Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna að þeir hinir sömu muni endurskoða fiskveiðistjórnunarfyrirkomulagið.

Þeir hinir sömu telja að það nægi, sem svar til nefndarinnar, en hefur sú vinna farið af stað ?

Nei ekki nokkur skapaður hlutur hefur heyrst af slíku, ekkert.

Forsætisráðherra var síðast á hestamannamóti og utanríkisráðherra að hjóla, sjávarútvegsráðherra vart sýnilegur nema við blogg um dásemdir ríkisstjórnarinnar í efnahagsöngþveiti nútímans.

Hvenær á að hefjast handa ?

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hvenær ætla konur í Frjálslyndaflokknum að lýsa því yfir að þær styðji útgerðarmanninn sem á Júlíönu Guðrúnu í Sandgerði við  að fá Mannréttindadómstólinn í Strassburg, til að dæma Íslenska kvótakerfið.Það yrði dómur, ekki ályt.Ég legg til að konur í Frjálslyndaflokknum byrji strax starf við að safna fé meðal annars til að styðja manninn við að koma málinu til Mannréttindadómstólsins, sem hann sgist ætla að gera.Til þess þarf hann lögfræðiaðstoð og peninga.En kanski ætlar Frjálslyndiflokkurinn að hlaupa í felur í þessu máli.Hvar er nú allt talið um mannréttindi.Er fólk kanski fyrst og fremst að vekja athygli á sjálfu sér,í stað þess að láta verkin tala.

Sigurgeir Jónsson, 14.7.2008 kl. 20:58

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Vertu alveg rólegur Sigurgeir, við erum uppi á dekki.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.7.2008 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband