Eigum við að viðhalda heilbrigðissjónarmiðum varðandi innflutning á hráu kjöti eða ekki ?

Ég hvet alla til þess vel með því atriði hvort sitjandi stjórnvöld í landinu taki mark á Margréti Guðnadóttur prófessor varðandi það atriði að innflutningur á hráu kjöti geti orsakað áður óþekkta sjúkdóma hingað til lands.

Við Íslendingar höfum verið þess umkomnir að viðhafa sóttvarnir hér á landi vegna einangrunar sem eyþjóð án landfræðilegra landamæra annarra en Atlantshafsins ?

Munu stjórnvöld fara fram á undanþágur frá matvælalöggjöf ESB í þessu efni eða ekki ?

Mun ábyrgð innflytjenda slkrar vöru til landsins vera skilvirklega til skjala skráð við innleiðingu löggjafar um innleiðingu hrávöruinnflutnings ?

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Runólfur Jónatan Hauksson

Guðrún María,,, er ekki búið að vera að flytja inn nautakjöt frá Argentínu, Kjúklinga  og endur frá Danmörk,,, rjúpur frá Skotlandi,,,,svínalundir frá Írlandi,,,,og ungvin dauður enn.

Kveðja frá Hoddnafirði. 

Runólfur Jónatan Hauksson, 18.5.2008 kl. 03:37

2 identicon

Sæl Guðrún.

Ég er hlyntur banni. Við getum framleitt nóg af öllu kjöti og sem meira er við getum auðveldlega gert öllum kleyft að kaupa afurðirnar.

Heilbrigði famar öllu.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 04:44

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría . Heilbrigði framar öllu segir Þórarinn. Ég tek undir það. Ég er samt ekki þar með sammála að það felist í banni á innflutningi á kjötvöru. Hvað með innflutta sjúkdóma í fólki sem flytur til landsins ? Ef hægt er að lækka matvöruverð með innflutningi eigum við þá að vera á móti því? Ég held að varnargarðar Atlandshafsins haldi engu hvort eð er. Sjáum t.d. eiturlyfjaflæðið til landsins. Mér finnst mjög brýnt að efla þær varnir. Þeir sem velja heilbrigði og öryggi velja sjálfsagt íslenskt frekar og því ætti markaðsstaða íslenskrar framleiðslu að halda velli. kveðja til þín Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 18.5.2008 kl. 14:29

4 identicon

"Mun ábyrgð innflytjenda slkrar vöru til landsins vera skilvirklega til skjala skráð við innleiðingu löggjafar um innleiðingu hrávöruinnflutnings?"

Ekki séns að fatta hvað þú átt við með þessari setningu.  Ef þú ert að spá í hvort innflytjendur beri ábyrgð á vörunni þá er það svo í dag.

Briet (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 17:26

5 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Íslenskum búpeningi stafar mun meiri hætta af fólki sem kemur til landsins á skófatnaði sem það notaði í útlöndum og líka af bílum sem koma með Norrænu og aka hér um sveitir, heldur en af kjöti sem flutt er inn í neytendapakkningum. Verslanir sem hafa um árabil flutt inn erlent kjöt hafa gert strangar kröfur um að ákveðnum skilyrðum um heilbrigði sé fullnægt. Ég á ekki von á að það breytist. Sum sláturhús hér á landi voru lengi vel til háborinnar skammar og það þurfti tilskipanir að utan vegna EES til að koma þeim í viðunandi horf.

Þóra Guðmundsdóttir, 18.5.2008 kl. 19:44

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég vil bíða og skoða þetta mál allt saman miklu betur.  Þetta er ekki tímabært.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.5.2008 kl. 22:36

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Því miður er lækknum matvöruverðs að ég tel aðeins eitthvað sem hugsanlega kann að verða tímabundið ástand því ætíð mun það kosta per margar krónur að flytja mat yfir Atlantshafið með olíu, hvernig sem það er gert.

Hrátt kjöt er eitthvað sem við höfum lagt hömlur á í áraraðir með það að markmiði að vernda gegn sjúkdómum og ég trúi prófessor Margréti Guðnadóttur varðandi það atriði að óhjákvæmilega eru við að útsetja okkur fyrir nýjum tegundum.

Slíkt þarf að vega og meta.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.5.2008 kl. 02:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband