Markaðshyggjuþokumóðan og umhverfismálapólítíkin.

Koma Al Gore hingað til lands vakti athygli eðlilega en óhjákvæmilega vakna eigi að siður spurningar hve mjög og hve mikið hin ýmsu fjármálafyrirtæki viðra sýna ásýnd varðandi umhverfismálavettvanginn sem varla getur verið af öðru til komið en hér sé meintur gróði í augsýn.

Vonandi bera menn gæfu til þess að fara þar fram með skynsamlegu móti og raunhæfum væntingum, almenningi til góða hvar sem er.

Samkrull stjórnvalda og markaðsaðila tel ég hins vegar að þurfi að skoða og setja skýr skil á milli þess hvar þar þjónar hver hverjum.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Held að þessi umhverfisumræða og gróðurhúsatal sé komið út í öfgar.
Held að lang stærsti (kannski 90%) veðurfarssveifla á jörðinni hafi
náttúrulegar skýringar fremar en allt sé þetta til komið af mannavöldum. Eða hvernig stendur á öllum þessum gríðarlegu sveiflum í veðurfari jarðar löngu áður en áhrifa mannsins fóru að  gæta sbr allir ískjarnanir sem hafa verið boraðir og  rannskaðir?
Russneskir vísindamenn hafa m.a bent á sólblettina sem aðal orsakir
þessara breytinga. Mjög athyglisverðar kenningar og trúverðugri.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.4.2008 kl. 21:23

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Það vill flest ganga út yfir öfgar á hvern veg sem er og meint náttúruverndarumræða hér á landi sem ekki nær út fyrir landsteina er hálf hlægileg á köflum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.4.2008 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband