Gömul mynd undan Eyjafjöllum.

RIMG0012.JPG_0001

Hér er mynd frá Rauðsbakka undir Eyjafjöllum þaðan sem ég á ættir mínar að rekja í föðurættina, sennilega um aldargömul mynd.

Hún Steinunn heitin amma mín er önnur frá hægri en hún var ein fjórtán systkina og einhverjar systur hennar eru þarna með á myndinni en þori ekki að segja hver er hvað. Annar drengjanna var síðar bóndi í sveitinni mér best vitanlega.

Væri gaman að vita hvort fleiri þekki til um þessa mynd frekar en ég.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Það er gaman að sjá þessa mynd frænka,ég man þetta fólk allt nema tvö systkinin,þetta var allt gott fólk,en gaman væri að vita hver er hvað.Ef þú átt eitthvað af svona gömlum myndum frá sveitinni okkar þá mundi ég þiggja að fá sendar á póstinn mínn.gudjonf@itn.is

Guðjón H Finnbogason, 15.3.2008 kl. 15:31

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl ég sé í Íslendingabók að þú átt ættir að rekja vestur á Snæfellsnes eins og ég og þannig erum við skyld.

Sigurður Þórðarson, 15.3.2008 kl. 22:16

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já ég skal senda þér myndir við tækifæri Guðjón, þarf að taka mig til og skanna myndir, þessi er tekin með myndavél af myndinni af Rauðsbakkabænum sem er fyrir austan og amma kom upp á land úr gosinu á sínum tíma.

Takk Hanna Birna.

Sæll Sigurður frændi, hvað segirðu á Snæfellsnes það vissi ég ekki um og þarf að skoða.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.3.2008 kl. 22:55

4 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Sæl frænka ég þarf að fara krókaleið að síðunni þinni.Í fyrra sumar vorum við með ættarmót niðjar afa Guðjóns og ömmu Þorbjargar,það tókst mjög vel og verður haldið næst að Heimalandi um miðjan júní 2009 og þar ætlum við að vera með myndir frá þessum gamla tíma og bara þessi mynd þín er frábær þar.Ég vona frænka mín að ég hafi ekki móðgað þig eitthvað eða komið illa við þig,ég hef nú aldrei séð þig eða hitt svo ég viti.

Guðjón H Finnbogason, 17.3.2008 kl. 19:51

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll frændi.

Já ég fór að stofna undirblogg svo það er krókaleið þarf að laga það.

Þú hefur nú ekki móðgað mig nokkurn skapaðan hlut. Já ég frétti af mótinu á Heimalandi en var lítið á ferð sl.sumar, og það er sannarlega frábært að halda svona mót og gaman að vera með gamlar myndir.

skelli þessari til þín í tölvupóst.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.3.2008 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband