Hvað er skattalækkun á fyrirtæki að gera með samningum launafólks á vinnumarkaði ?

Útspil stjórnvalda í samræmi við gerð kjarasamninga launamanna um skattalækkun á fyrirtæki er furðulegt því túlka má hinar hlægilegu 194 krónur sem hinn vinnandi maður fær sem ráðstöfun stjórnvalda sér til handa eins og bláber við hlið melónu 3% skattalækkunnar á fyrirtæki sem sá hinn sami er þar með væntanlega að niðurgreiða með sömu skattastöðu.

Launahækkun sem nemur um það bil 18 þúsund krónur til handa hinum almenna verkamanni gerir akkúrat ekki neitt til að laga stöðu þess hins sama í óbreyttu skattaumhverfi.

Núverandi ríkisstjórn hefur birt sitt grímulausa andlit þess efnis að ganga erinda fyrirtækja á kostnað einstaklinga líkt og þar hafi nú ekki verið nóg komið í sögu undanfarinna áratuga.

Mál er að linni.

kv.gmaria.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband