Bar Vilhjálmur ábyrgð á risarækjueldisævintýri Orkuveitunnar og Línu net, eða var það R-listinn ?

Hvenær kom það til sögu, að þjónustufyrirtæki  í eigu almennings færi að standa í rekstri utan síns þjónustusviðs ?

Var það ekki í tíð R-listans í Reykjavík, þegar borgarstjórinn var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, og stjórnarformaður Orkuveitunnar Alfreð Þorsteinsson ?

Ég hygg að allir starfandi flokkar í borginni þurfi all verulega að líta í eigin barm varðandi ákvarðanir í málefnum Orkuveitunnar , stjórnarhætti þar á bæ um langan tíma sennilega tvö kjörtímabil eða svo.

Rei málið og framgangur þess var ekki einstök tilviljun að mínu viti heldur framhald af viðteknum stjórnarháttum í málefnum þjónustufyritækisins Orkuveitu Reykjavíkur.

Þar skyldi í upphafi endirinn skoða áður en einn maður skyldi gerður ábyrgur fyrir slíku.

kv.gmaria.

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Er ekki í lagi með Línu Net malar það ekki gull.Rækjan var bara klúður þar átti að fara að hjálpa einhverjum en var bara rugl

Guðjón H Finnbogason, 10.2.2008 kl. 00:15

2 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Í  hvaða flokki er Borgastjórinn?

Guðjón H Finnbogason, 10.2.2008 kl. 00:16

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll frændi.

Hvorki risarækjueldi eða Lína net átti nokkurn tímann heima sem verkefni Orkuveitu Reykjavíkurborgar, aldrei.

Núverandi borgarstjóri var skráður flokksmaður í Frjálslynda flokknum þegar sá hinn sami náði kjöri sem borgarstjórnarfulltrúi síns flokks í Reykjavík, sama máli gegnir um annan mann á sæti þess lista.

Mér best vitanlega gekk sá hinn sami úr okkar flokki rétt fyrir síðustu þingkosningar en hvort hann gekk í annan flokk ætla ég ekki að fullyrða um, en annar maður lista er varaformaður í flokki Ómars Ragnarssonar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.2.2008 kl. 00:47

4 identicon

Rétt hjá þér Guðrún María.  Það væri alveg þess virði að setja á nefnd til að rannsaka þetta.   Í tíð R-listans gekk á þvílíkt sukkerí með almannafé, ekki bara að hégómaleg glæsihöllinn fór ca 3 milljörðum fram úr áætlunum, heldur var peningunum okkar í milljarðavís kastað á glæ í ævintýraverkefni eins og risarækjueldi og frumkvöðlastarfsemi á heimsvísu með vonslausa tækni þar sem flytja átti stafræn gögn um rafmagnsleiðslur.   Og þegar það gekk ekki upp, þá var ákveðið að fara í samkeppni við fjarskiptafyrirtæki með hefðbundinni tækni.

Þarna voru stjórnmálamenn að leika sér með OR, til að uppfylla óra sína um að vera stórir bisnessmenn.   Sjálfur var ég vitni að því þegar þessir menn lýstu fjálglega stórtækum fyrirætlunum sínum, sem voru miklu stærri og víðtækari heldur en fram hefur komið opinberlega.   

Í þessu ljósi þykir mér skondið þegar R-lista fólk er að reyna að krýna sjálft sig með geislabaug.   Þetta er ekki heiðarlegt fólk, því miður.

Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 01:44

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já Sigurður ég er ansi hrædd um að ekki skyldi treyst á gullfiskaminni kjósenda í þessu efni.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.2.2008 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband