Áhrif hagsmunaaðila á ákvarðanir alþingismanna.

Þingmenn eru kjörnir og sverja eið að stjórnarskránni til að fylgja sannfæringu sinni um mál öll sem þeir hinir sömu gefa sig út fyrir í kosningum til þings.

Of oft heyrir maður þingmenn bera fyrir sig álitum hagsmunaaðila við lagasetningu hvers konar nú síðast í Kastljósi kvöldsins þar sem þingmaður Samfylkingar sagði í einu og öllu hafa verið farið að óskum hagsmunaaðila varðandi tóbaksvarnalög.

Ég álít að kjörnir þingmenn ættu að leggja það af að bera slíkt fyrir sig hvað varðar lagasetningu því lögin eru þau sem þeir bera fram fyrir alþjóð og bera ábyrgð á ,að teknu tilliti og eftir mat á innsendum athugasemdum aðila.

Allt svona tal er nefnilega til þess fallið að firra þingmenn þeirri ábyrgð sem þeir bera í raun sem kjörnir leiðtogar og varpar rýrð á þingið og þingstörf að mínu viti.

kv.gmaria.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Það æti líka að kenna henni kurteisi hún á að þegja þegar aðrir eru að tala.Það getur verið hættulegt að tjá sig svona eins og hún gerði með að vera einskorðuð að því kvað hagsmunarsamtökin vildu.kv.kokkurinn

Guðjón H Finnbogason, 5.2.2008 kl. 12:57

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

He he, já Guðjón vaðallinn er orðinn eins konar tízka þ.e að vaða yfir mann og annann.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.2.2008 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband