Lifa fjölmiðlarnir á deilum og erjum innan stjórnmálaflokka hér á landi ?

Á stundum mætti halda að svo sé, og þá ekki hvað síst á kostnað nauðsynlegrar rýni á samfélagið og þróun eða stöðnun stjórnvaldsathafna hverju sinni.

Nær allir íslenskir starfandi fjölmiðlar hafa kropið á kné fyrir markaðsmennskuþróun eins þjóðfélags eins og blindir sauðir leiddir fram af björgum.

Nægir þar að nefna frásagnir af gróða eða tapi fyrirtækja hér og þar daginn út og inn og visítölugengi hlutabréfa dag hvern árið allt um kring.

Misskipting gæða þess markaðsþjoðfélags og skiptingu þegna í hópa eftir tekjusskiptingu og möguleika til atvinnutækifæra hefur ekki verið eins mikið fréttaefni.

Til dæmis komu fjölmiðlar ekki auga á það frekar en Mannréttindaskrifstofa sem starfar í landinu að mannréttindi væru brotin hér á landi í íslenska kvótakerfinu en fjölmiðlar fóru mikinn þegar fjárframlög til starfsemi skrifstofunnar voru skert hér einhvern tíma að mig minnir.

Fréttaefnið var jú deilur.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Tetta er örugglega trix hjá Binga hann er ekkert á leið úr Framsókn. Vissulega væri vert að tala um stærri mál.  En bíddu við.

Sigurður Þórðarson, 20.1.2008 kl. 03:33

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Var nú að tala um stjórnmálaflokka almennt Sigurður þessu sinni, það er landlægur fjandi hversu mjög er alið á illdeilum og erjum um akkúrat ekki neitt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 20.1.2008 kl. 03:37

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hef ætíð haft fyrirvara um þessa Mannréttindaskrifstofu svokallaða.
Öll mannréttindi þar á bæ virðast oftar en ekki vera mjög afstæð.
Sama má segja um fjölmiðla, því miður!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.1.2008 kl. 00:53

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já það segirðu satt Guðmundur, afstæð mannréttindi eru einmitt nákvæmlega það sem ég hefi einnig orðið áskynja um, varðandi þá hina sömu starfssemi.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.1.2008 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband