Andsvar almennings gagnvart niðurrifsöflum af hálfu trúlausra.

Það hefur verið afar ánægjulegt að heyra að fólk er ekki tilbúið til þess að láta yfir sig ganga endalausan áróður sem felur í sér niðurrif á trúarskoðunum þess, og þeim lífsgildum sem boðskapur trúar hefur fært samfélagi á norðurhjara veraldar þar sem þjóð vor telst þjóð meðal þjóða í formi þeirra lífsgilda sem trúin meðal annars inniheldur í voru siðgæði.

Í mínum huga er það mjög skýrt að trúin er það meðal sem við eigum og án hennar værum við mun fátækari svo mikið er víst, því trúin veitir okkur von og vonin er lífsneisti framtíðarinnar og forsenda kærleikans í lífi mannanna.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Ég er ekki sammála og ég held að þú sért að misskilja okkur trúleysingja.

Mér er sama hvort þú trúir á banana eða geithafur eða eitthvað annað (þó auðveldara væri að færa rök fyrir tilvist banana en guðs, en það er annað mál).

Flest okkar trúleysingja erum dauðþreytt á því að vera sökuð um að vera slæmt fólk og óhæf um siðferðislega hegðun og gildismöt á þeim forsendum að okkar trúarskoðanir byggjast á vísindalegum nútímastaðreyndum en ekki 7000 ára gömlum getgátum eyðimerkurættbálka. 

Ég fyrir mitt leyti hef ekkert á móti  því að fólk trúi, en það þarf ekki að deila því með öllum. Það er í sjálfu sér niðurrifsstarfsemi og lítilsvirðing gagnvart trúar*skoðnunum  annara fólgin í öllum þeim trúarbrögðum sem stunda trúboð (sem segja 'ég hef rétt fyrir mér, ekki þú') og væri því ekki rétt að biðja fólk að virða þau lágmarks mannréttindi að leyfa fólki að trúa því sem það trúir og að vera ekki að troða kristnum gildum eða gildum annara trúarbragða á fólk sem vill ekkert með þau gildi hafa?

Trúin getur verið gott meðal fyrir þá sem eiga um sárt að binda, en það þýðir ekki að það sé hollt meðal. Það þýðir ekki að það sé skaðlaust og það þýðir ekki að það eigi að troða því yfir alla.
Ég meina, marijuana  hefur mjög jákvæð áhrif á fólk sem þjáist af þunglyndi, eyðni, krabbamein og fjölda lungnasjúkdóma, það væri litið hornauga ef lögleiðingarsinnar mættu í skóla og færu að tala um frelsun og byltingu kannabisefna í skólum. Hversvegna þá ópíum fjöldans?

Það er sjálfsagt að fræða börn um trú, en það að hafa 'kristin gildi' (getur þú talið þau upp án þess að leita að þeim í bók eða á netinu?)  og sértæka kristinfræði (með hálfalágmarksfræðslu um önnur trúarbrögð) í ríkisreknum skólum, sem greiddir eru með skattpeningum trúleysingja jafnt sem trúaðra er einfaldlega rangt.

Annars vil ég benda þér á eitt varðandi eingyðistrúarbrögðin, þau byggja á þýlyndi og hræðsluáróðri og instilla hugsunarhátt sem er andstæður lýðræðishugsjóninni (meginstelling kristninnar er með spenntar greipar, á hnjánum, íslam þýðir 'undirgefni', amen, verði þinn vilji, ef þú hlýðir ekki settum reglum trúboða yfirvalds og presta brennur þú í helvíti og það er allt í lagi að ein vera (guð) ráði öllu í heiminum og þú átt bara að hlýða)... og Íslendingar voru neyddir í kristnitöku sem við gerðum bara að nafninu til á meðan við gátum haldið heiðnum gildum og því fer fjarri að nornaveiðar, rannsóknarréttur eða skoðanalögregla rómar, konstantínópel og evangelista hafi hjálpað okkur áfram á hjara veraldar

*(eða trúleysis)

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 6.12.2007 kl. 08:31

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Kristin trú er samofin íslenzkri þjóðmenningu í 1000 ár. Því á  að
standa vörð um hana eins og sjálfan þjóðararfinn. Svo einfalt er það
nú.........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 6.12.2007 kl. 11:42

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Ragnar Örn, þetta er helber dónaskapur, það er óþarfi að grípa til rökleysu þegar þú getur ekki borið rök fyrir þinni skoðun. Trúleysi er trúarskoðun, en ekki trú. Trúleysi eða vantrú eru bestu orðin yfir það sem kallast guðleysi - atheismi á útlensku. Hinsvegar hlýtur þú að viðurkenna sem einstaklingur í trúfrjálsu samfélagi að trúleysi ber jafn háan rétt og trú, sem trúarskoðun.

Guðmundur, mér leiðist að segja þér það, en það tók Ísland 950 ár að jafna sig á kristnitökunni og afleiðingum hennar... svo veit ég ekki hvort ég vilji viðurkenna júdeókristna hugmyndafræði frá arabalöndunum sem Íslenska menningararfinn þegar við eigum eddurnar og heiðindóminn. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 6.12.2007 kl. 21:00

4 Smámynd: Blómið

Kæri J. Einar Valur Barnason Maack.

Að sjálfsögðu áttu rétt á því að hafa þínar eigin skoðanir. En að sama skapi þarft þú að virða skoðanir annara. 

"Mér er sama hvort þú trúir á banana eða geithafur eða eitthvað annað (þó auðveldara væri að færa rök fyrir tilvist banana en guðs, en það er annað mál)."  (skáletrun er frá blominu :) )

Hvað með kristið bókstafstrúarfólk??  Má það ekki hafa sína trú í friði??   Maður hefur mikið séð skrifað hér á blogginu um að afnema eigi kristnifræðikennslu í grunnskólum.

Þá spyr ég á sömu nótum.   Eigum við ekki að afnema kennslu í þróunarsögu mannsins.  Þ.e. maðurinn er komin af öpum.   Hellingur af fólki hér trúir á það að það hafi í upphafi verið Paradís og mannkynið sé skapað af Adam og Evu.   Hellingur af fólki hér á landi trúir því að við förum til Valhallar á æðsta degi og berjumst og drepumst, en vöknum öll aftur og höfum það glæst í mat, drykk og skemmtan í Valhhöll.

Á ekki bara að banna allar kenningar um trúarbrögð í grunn- og framhaldsskólum?????   Halda sig bara við stærðfræði, íslensku og alþjóðaviðskipti.   Það er það sem skiptir máli í dag, eða hvað?????

Blómið, 8.12.2007 kl. 00:24

5 Smámynd: Sigurður Hólm Gunnarsson

"Maður hefur mikið séð skrifað hér á blogginu um að afnema eigi kristnifræðikennslu í grunnskólum."

Það er í það minnsta ekki skoðun Siðmenntar. Siðmennt hefur alltaf verið fylgjandi öflugri fræðslu um trúarbrögð!

Sigurður Hólm Gunnarsson
Stjórnarmaður í Siðmennt
www.skodun.is

Siðmennt - félag siðrænna húmanista á Íslandi
www.sidmennt.is 

Sigurður Hólm Gunnarsson, 10.12.2007 kl. 09:45

6 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Ég er hlynntur trúarbragðafræðslu, en enganvegin eins einsleita kristnifræðikennslu og trúboð og var í mínum barndómi.

Það henti mig nefnilega að lesa biblíuna...

og þessvegna er ég trúlaus.

Ergo er ég hlynntur kennslu, en ekki trúboði. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 10.12.2007 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband