Góður fundur á Grand Hotel í kvöld.

Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum hélt góðan félagsfund á Grand Hotel í kvöld, þar sem Kristjbjörg Kristmundsdóttir, jógakennari, hélt alveg frábæran fyrirlestur fyrir okkur þar sem hún leysti  meðal annars úr læðingi orku fundarmanna með nokkrum æfingum. Þetta var mjög skemmtilegt þar sem við ætlum einmitt að fara í ferðalag með þingmanni flokksins í Reykjavík Jóni Magnússyni og skoða mannvirki Orkuveitunnar á Hellisheiði á morgun en hann flutti erindi á fundinum. Guðjón Arnar formaður og Kristinn H, ásamt Magnúsi Reyni framkvæmdastjóra og Eiríki Stefánssyni, komu einnig á fundinn, og heiðruðu okkur með nærveru sinni. Set hér inn nokkrar myndir af fundinum.

RIMG0020.JPGRIMG0011.JPGRIMG0021.JPGRIMG0014.JPG


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband