Hvers vegna hefur ekki verið fyrir löngu síðan verið hægt að lækka tekjuskatt á landsmenn ?

Miðað við allt hið mikla góðærishjal allra handa á undanförnum árum sem og hina geysimiklu herferð íslenskra fyrirtækja í útlöndum mætti ætla að tekjur ríkissjóðs hafi aukist nægilega til þess að lækka skatta á hinn almenna launamann í landinu. Hvers vegna hefur slíkt ekki átt sér stað svo nokkru nemi ?

Meginástæðan að mínu mati er sú að það hreinlega gleymdist að taka mið af því að fyrirtæki í sjávarútvegi þyrftu hugsanlega að greiða gjald fyrir umsýslu með aflaheimildir millum aðila í greininni. Skortur á gjaldtöku við tilkomu þess kerfisfyrirkomulags sem samþykkt var á sínum tíma hefur , lent beint á hinu opinbera í ýmsum myndum og gerir enn því flest sem lýtur að  upphaflegum markmiðum fiskveiðistjórnarlaganna m, hefur illa eða ekki gengið upp.

Þess vegna hefur ekki verið hægt að lækka skatta á landsmenn í svo langan tíma, meira en raun ber vitni.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband