Stormur í vatnsglasi, stríð um meint verðsamráð á kjúklingaleggjum... ?

Það er með ólíkindum hve mjög aukaatriðin verða oft að aðalatriðum hér á landi. Hagsmunir neytenda felast ekki í því hvort frampartur af kjúkling kosti einni krónu meira hér eða þar í dag eða á morgun, heldur í verðlagningu og verðmyndun vörunnar frá upphafi frá ferli framleiðanda til neytanda. Framleiðsluferlið og skipulag mála hvað varðar eignarhald og samruna fyrirtækja á matvælamarkaði og heildarmarkaðshlutdeild eru stóru málin í þessu sambandi, sem haft skyldi til haga i þessu sambandi.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mikið er ég hjartanlega sammála. Stormur í vatnsglasi sem hefur jú þann tilgang að finna glæp.

Tilbeiðsludeild flóttamannsins í Múrnum við Arnarhól er að verða heilsulaus af áhyggjum vegna Jóhannesar í Bónus sem gengur ennþá laus þrátt fyrir dýrustu málssókn Íslandssögunnar.

Þessi gífurlega mikilvæga rannsókn mun skyggja á vandamál unga fólksins sem nú er að tapa íbúðunum sem það var platað til að kaupa.

Og það er að tapa þeim vegna hinnar snilldarlegu hagstjórnar Davíðs Oddssonar og vaxtaokri sem hann stýrir.

Árni Gunnarsson, 2.11.2007 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband