Íslendingum er enginn vorkunn að versla áfengi annars staðar en í matvörubúðum.

Það eru og verða fullgild rök gegn auknu frelsi í sölu áfengis að aukið aðgengi eykur neyslu, sem aftur eykur þjóðfélagsleg útgjöld varðandi afleiðingar notkunar hvers konar. Fullgild vitræn rök sem við eigum að virða sem slík. Ágangur markaðsafla varðandi það atriði að reyna að komast yfir þessa tegund viðskipta þ.e. að versla með áfengi í matvörubúðum, hefur að mínu áliti lítið erindi sem erfiði eins og staðan er í dag varðandi það atriði að ákveðinn aldur starfsfólks að störfum gæti einungis selt slíka vöru. Með öðrum orðum fyrirtækin þyrftu að ráða fólk með starfsaldur á vinnumarkaði sem vissulega kostaði meira og hvar skyldi innkoma fyrir slíku vera tekin nema einmitt í verði vörunnar ?

Í upphafi skyldu menn því endirinn skoða.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svo er annað sem vantar í umræðuna, þeir sem eru fylgjandi því að léttvín og bjór verði í matvöruverslunum bera því við að þannig sé þetta í Frakklandi, Ítalíu og víðar jú það er alveg rétt, þar erum við líka að tala um þjóðir sem telja milljónir og miljónatugi og hafa ráð á því að reka tvöfalt kerfi í áfengissölu en hér á landi er íbúafjöldinn rétt um 300 þúsund og það gefur auga leið að með þessu væri rekstrargrundvellinum fyrir því að reka áfengsverslanir úr sögunni.

Jóhann Elíasson, 18.10.2007 kl. 00:27

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já tek sannarlega undir það sjónarmið Jóhann.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.10.2007 kl. 00:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband