Hin guðdómlega markaðshyggja í allri sinni mynd með verðtryggingu fjárskuldbindinga í heimalandinu í bakhöndinni ?

Það er annaðhvort að Íslendingar " ryksugi markaðinn " í öðrum löndum meðan við látum það yfir okkur ganga að vera ofurseld fjármálafyrirtækjum sem gera út á verðtryggingu og uppreiknaðan kostnað á kostnað ofan hér á landi. Hvað annað ?

kv.gmaria.


mbl.is Stendur í stórræðum í Stokkhólmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er akkúrat það sem hér er að gerast.  Nú sölsar einkageirinn undir sig landgæðin með klókindum og hjálp sinna flugumanna í stjórnsýslunni.  Ekki til að ávaxta fyrirtækin sérstaklega, heldur til að eiga veð fyrir sínum ótrúlegu og rómuðu útrásarprójektum.  Erlendir spekúlantar dæla í þá peningum með fjöregg landsins sem veð og gera út á sturlað vaxtastigið.

700 milljarðar a.m.k. eru hér í hagkerfinu af slíkum skammtímaskuldbindingum, sem verður kippt út fyrirvaralaust ef stýrivextir lækka. Þegar það gerist þá verður dómínóeffekt gjaldþrota hér og hinir stóru bankar innleysa veðin sín.  Við lendum á útsölu í kolaporti frjálshyggjunnar og endum sem leiguþý erlendra lénsherra á ný.  Þetta er leikfléttan.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.10.2007 kl. 04:31

2 identicon

Thetta hefur verid ad gerast i 12 ar! En thad er mjog gott ad folk er ad atta sig. Og naesti leikur er ?

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 06:15

3 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Já löngu kominn tími til að þjóð vor vakni af þessum þyrnirósar blundi,ég var farinn að halda við værum bara svona blind og heimsk.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 15.10.2007 kl. 07:20

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er allt að fara lóðrétt til andskotans og nú síðast var ríkið að styrkja Símann, sem löngu er búið að einkavæða og ástæðan sögð sú að tap hefði verið á einhverjum hluta dreifikerfisins.  Það er ekki nóg með að ríkisfyrirtæki hafi nánast verið gefin einkaaðilum, heldu koma þeir aðilar skríðandi til ríkisins og betla peninga.  Og að sjálfsögðu er það látið eftir þeim, því ekkert má skyggja á einkavæðinguna og þetta er ekki búið enn.  Hver einasti fiskur sem syndir í sjónum er veðsettur í bak og fyrir.  Næst á að ráðast á orkulindirnar og gefa þær til nokkurra útvalda.  Búið er að gefa allt vatn á Íslandi.  Ætli það verði ekki andrúmsloftið næst?

Jakob Falur Kristinsson, 17.10.2007 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband