Frjálslyndi flokkurinn hefur nú bent á mistök við fiskveiðistjórn hér við land í tæpan áratug.

Guðjón Arnar dró enn einu sinni fram ágalla núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis hér við land í ræðu á eldhúsdegi en Frjálslyndi flokkurinn hefur í tæpan áratug barist fyrir umbreytingum á kerfi sem þjónar illa eða ekki settum markmiðum þess hins sama. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú fengið Samfylkinguna til liðs við sig til þess að standa vörð um hið lélega kerfi og framkvæmd þess með umbreytingaleysi þar að lútandi í einu og öllu. Tillögur um skerðingu þorskafla á komandi fiskveiðiári eru þess eðlis að " bíta höfuðið af skömminni " gagnvart kerfisskipulaginu öllu frá upphafi svo ekki sé minnst á meintar mótvægisaðgerðir sem hafa heldur betur snúist í andstæðu sína þegar tillögur um styrki til flutnings á mölina af landsbyggðinni eru einn kapítuli af handapatakenndum aðgerðum sem enginn veit þó enn hverjar koma til með að verða. Stjórnvöld gátu axlað þá ábyrgð að endurskoða kerfið en það var ekki gert, því miður.

kv.gmaria.


mbl.is Guðjón Arnar: Engin haldbær rök fyrir að skerða þorskkvótann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Góð færsla hjá þér. (að venju)

Okkar menn stóðu sig vel.

Sigurður Þórðarson, 3.10.2007 kl. 13:35

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það virðist vera alveg sama hvað reynt er að benda á galla þessa kvótakerfis.  Ekkert virðist duga, kerfið skal varið hvað sem það kostar og jafnvel mun sjálfum þorskinum verða fórnað í vonlausri baráttu að verja þetta kerfi.

Jakob Falur Kristinsson, 3.10.2007 kl. 17:21

3 Smámynd: Halla Rut

Það þarf fleiri atkvæði til að hægt sé að hafa áhrif á þetta. Til þess þarf fleiri sterk málefni.

Halla Rut , 4.10.2007 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband