ER ekki sama hvaða lög menn brjóta varðandi brottvísun úr landi ?

Var að hlusta á gífurlega fréttaumfjöllun fréttamanna Ríkisútvarpsins um mál konu sem sem fengið hefur bréf um hugsanlega brottvísun úr landi vegna göngu yfir mörk laga í mótmælaaðgerðum og viðtal fréttamanns við forstjóra Útlendingaeftirlitsins vegna þess. Spurning fréttamannsins var stórfurðuleg.  " En þetta er hugsjónamanneskja og hún á kærasta hér á landi .......... jafnframt , hún er ekki fíkniefnasali eða ofbeldismaður ...... ? "  Eru fréttamenn Ríkisútvarpsins í hlutverki þess er flokkar fólk sem hugsjónamenn ? Er ekki sama hvaða lagabrot eru á ferð og hvaða gildi skyldi meðalhófsregla stjórnarskrár innihalda varðandi brotaflokkun ?

Spyr sá sem ekki veit.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Árni.

EF land skal með lögum byggja þá skyldi eitt yfir alla ganga og hvers konar flokkun á lagabrotum getur varla verið fyrirmynd til framtíðar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.9.2007 kl. 02:29

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það er alveg rétt, reglugerðarflóðið er ómælt og reglugerðaheimildir sitjandi ráðherra sem aldrei koma til kasta Alþingis allt of miklar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.9.2007 kl. 02:41

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ef að útlendingur.....:

*er tekinn fyrir of hraðan akstur..segjum 20 km yfir hámarkshraða í Ártúnsbrekkunni...
*er tekinn fyrir að míga utan í pósthúsið..
*sýnir íslenska fánanum lítilsvirðingu með þvi að taka hann ekki niður fyrir sólsetur...
...skal honum umsvifalaust vikið úr landi! 

Ertu alveg að missa það Guðrún María?

Heiða B. Heiðars, 28.9.2007 kl. 02:49

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef brotin eru af þeirri stærðargráðu að fólk hafi setið í fangelsi fyrir þau,þá skiptir engu máli hver tilgangur brotsins var Heiða.  Það er á hreinu, í lögunum að ef útlendingur er dæmdur til að greiða sekt sem er yfir 50.000 kr. eða fer í fangelsi, þá er honum vísað úr landi eftir afplánun.  Svo er álitamál hvar "mörkin" eiga að vera.  persónulega finnst mér brot þessarar stúlku ekkert vera "léttvægari" en önnur og vera að bera fyrir sig hugsjón er alveg fáránlegt eins gætu eiturlyfjasmyglarar borið fyrir sig hugsjón þeir eru jú væntanlega að flytja þessi efni inn í landið svo "neytendur" fái efni.

Jóhann Elíasson, 28.9.2007 kl. 09:09

5 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Árni minn. Ég leyfi mér að vitna í þína eigin færslu frá 26.6.07, en þar segir;

Lögreglan á Selfossi veitti nú síðdegis athygli bíl í sandinum vestan við Óseyrarbrú. Í ljós kom að ellefu ára gamall drengur sat undir stýri og ók undir handleiðslu forráðamanns, sem sat í farþegasæti.

Það er með ólíkindum að lögreglan skuli ekki hafa séð í gegnum fingur sér þarna."

Þarna eru greinilega brotin lög, en samt finnst þér að lögreglan eigi að hundsa það. Gildir þessi dómharka þin eingöngu um fíkniefnaneytendur og útlendinga?

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 28.9.2007 kl. 12:11

6 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Jóhann: Guðrún María skrifar -Er ekki sama hvaða lagabrot eru á ferð-

Það er lögbrot að stela kótilettum, míga utan í hús og að ræna banka. Að sjálfsögðu er EKKI sama hvaða lagabrot eru á ferð.... ekki það að lagabrot ferðist, en ég vildi halda mig við orðalag gmaríu:) 

Heiða B. Heiðars, 28.9.2007 kl. 21:21

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef sektin var meira en 50.000 kr. á að vísa henni úr landi samkvæmt lögum, það segir það sem þarf Árni.

Jóhann Elíasson, 29.9.2007 kl. 00:27

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er í reglum sem stjórnvöld eiga að fara eftir að sjónarmið beggja aðila eiga að koma fram.  Lög eru eitt og framkvæmd annað.  Eða þó að lögin segi þetta þá verða bæði sjónarmið að liggja til grundvallar framkvæmdinni.  Ekki veit ég hvort ég nenni að eyða nóttinni í að þvarga við þig um lagaframkvæmdir ekki er ég löglærður en vegna starfa sem kennari í lögum við einn framhaldsskóla landsins varð ég að kynna mér þessi mál nokkuð vel og ég efast stórlega um að þú sért eins mikið inn í þessum málum og ég en viljir þú kynna þér þetta skaltu fara á netið og fletta í gegnum lagasafnið á Alþingisvefnum.

Jóhann Elíasson, 29.9.2007 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband