Öfgaforsjárhyggja ellegar algjört andvaraleysi einkennir stjórnmálasviðið.

Markið er ekki reist til þess að skyttan missi þess, sagði grískur spekingur Epikets forðum daga. Hin hjákátlega barátta mannsins til þess að stjórna, drottna og dýrka tekur á sig ýmsar myndir og nú virðast ráðuneyti ausa úr sjóðum almennings við skipan starfshópa hægri vinstri í allra handa verkefni ákvarðanatöku sem þingmenn eru kjörnir til að taka , ekki starfshópar héðan og þaðan. Sú tilhneiging að dreifa valdi á þann veg að undanskilja sig ábyrgð ákvarðana er ekki góð og hluti af andvaraleysi sem ríkir, en verkefnin sem vaðið er í eru oftar en ekki algjörlega ónauðsynleg og taka mið af forsjárhyggjuáráttu ráðamanna til afskipta af frelsi einstaklinga og fyrirtækja í samfélaginu hvers konar eftir því hvernig vindurinn blæs og menn geta slegið sig til riddara í kjölfar mála sem hátt kveða.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sammála. En hafa verður í huga að ríkisstjórnin er skipuð mjög
vinstrisinnuðu fólki í dag til helminga. Vinstrisinnuðu sem m.a voru
í hinu sósíaliska Alþýðubandalagi og róttæka Kvennalista forðum.
Það hlýtur að skila sér í stóarukinni forræðishyggju. Og þetta skuli
Sjálfstæðisflokkurinn standa fyrir. Flokkur sem stóð til boða í vor
að mynda hér STERKA BORGARALEGA ríkisstjórn til frambúðar með
Framsókn og Frjálslyndum. - Eitthvað meir en lítið að þar á bæ..........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.9.2007 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband