Ósamstiga ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, í hverju máli á fætur öðru.

Það var nú ekki beinlínis það sem vantaði hér á landi að tveir flokkar settust saman í ríkisstjórn sem varla vita hvort eru að koma eða fara í hinum og þessum málaflokkum þar sem orð ráðherra rekast hvert á annars horn og stefnufestu er ekki að finna, heldur að virðist fremur leit að henni í formi lærdóms samskiptaforms einhvers konar. Haustþing hefur þó enn ekki tekið til starfa og einungis verkefni sem við er að fást hverju sinni sem komið hafa til kasta í þessu efni. EF sams konar samskipti ráðherra á sitt hvorri skoðun inni á hinu háa Alþingi er eitthvað sem þjóðin má gjöra svo vel að þurfa að meðtaka, þá líst mér ekki á framvindu mála.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Eftir tæp fjögur ár eru kosningar í síðasta lagi.Þá mun Samfylkingin standa með pálman í höndunum varðandi stjórnarmyndun.Ef ekki tekst að byggja Frjálslynda flokkinn upp sem fjálslyndan hægriflokk með ákveðnar trúverðugar stefnur sem ganga upp, í sjávarútvegsmálum sem öðrum málum, þá lendir flokkurinn utangarðs við stjórnarmyndun, ef honum tekst þá að bjóða fram, eða koma mönnum á þing.Framsóknar flokkurinn mun klárlega bæta einhverju við sig  og valið mun þá standa milli Frjálslyndra og vinstri Grænna.Ef frjálslynda flokknum

Sigurgeir Jónsson, 7.9.2007 kl. 09:02

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Þú mátt bóka að ég mæti þann 20, en hafði ekki hugmynd um rabb-ekki fund, enginn hringt eða sent póst. Takk takk.

Sæll Sigurgeir.

Frjálslyndi flokkurinn mun láta að sér kveða á komandi kjörtímabili það skal ég lofa þér og tryggja sig enn frekar í sessi .

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.9.2007 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband