Ryð í gegnum málninguna á Grímseyjarferjunni ???

Einn fulltrúi stjórnarandstöðunnar Bjarni Harðarson fór um borð í Grimseyjarferjuna og sá það meðal annars að ryð var komið gegnum málningu á ferjunni. Þetta kom fram í fréttum í sjónvarpi nú í kvöld. Jafnframt hafði hann undir höndum minnisblað þar sem kom fram að stjórnvöld voru tilbúin til þess að dekka það sem til þyrfti til að kosta viðgerðir á handónýtu skipi að öllum líkindum, fyrir kosningar. Það er ekki öll vitleysan eins heldur aðeins mismunandi hér á landi. Hvað næst ?

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hið versta mál, það er ekki hægt að "fela" ástand "flaksins" með því að mála yfir verstu blettina, ja þá er ástandið orðið slæmt ef dallurinn byrjar að ryðga upp í slippnum.  Allt þetta mál er ein sorgarsaga og alltaf er að koma meiri vitleysa í ljós vegna þessa máls, en samt telja þeir Árni Matt og Sturla Böðvars ekki bera neina ábyrgð á vitleysunni og eru dyggilega studdir af forsætisráðherra.  Hvað kemur fram næst?

Jóhann Elíasson, 3.9.2007 kl. 10:32

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Það er von að spurt sé, er alveg sammála mál þetta er með ólíkindum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.9.2007 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband