Viðurstyggileg glæpamennska í formi fíkniefnasölu, kostar of mikið.

Það er ömurlegt þegar ungmenni ánetjast eiturlyfjum og það atriði að menn skuli vera meðal okkar sem græða á tá og fingri fyrir það að gera hluta þjóðfélagsþegna háða ólöglegri söluvöru sem aftur stuðlar að kostnaði allra samfélags og einstaklinga við það að takast á við vandamál þessara glæpa er óásættanlegt. Vandamálin eru þess eðlis að sýkja allt umhverfi í kring um sig með einum eða öðrum hætti inni á heimilum og úti í þjóðfélaginu. Viðhorfið gagnvart slíku hvoru tveggja á og má vera fordæming en þar á slíkt fordæming við.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl GMaría. Ég er sammála þér í þessu þó ég sé ekki mikið fyrir að fordæma. Mér finnst orðið sjálft asnalegt. Fordæma =dæma fyrirfram. Það er vel hægt í þessu efni þar sem afleiðingarnar geta aldrei orðið nema ömurlegar og vonandi líka fyrir þá sem þiggja fé fyrir að selja og flytja inn eitrið. En hvernig erum við að refsa þeim sem það gera. Idolstjarna að koma út á götuna aftur eftir eitt stærsta smygl sem tollurinn hefur tekið í einhvern tíma af einstaklingi. Þetta er nú fyrirmyndin.  Hvernig tökum við á móti erlendum burðardýrum. Ég fór í  heimsókn fyrir kosningar í vor  og ræddi við útlendina sem sitja inni á Hrauninu. Þetta er fínt sagði einn bara eins og sumarbúðir. ´Hann fær ágætan mat æfingarsal sjónvarp og bækur og svo vinnu þannig að hann er betur settur en heima hjá sér þannig að áhættan er engin en mikil gróðavon ef hann sleppur í gegn.. Er nú vona á góðu .... 

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.8.2007 kl. 21:05

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já Kolla það eru margar hliðar á málum öllum, það er víst alveg ábyggilegt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.8.2007 kl. 00:16

3 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Já stelpur ég er ykkur sammála.En stóra spurningin er hverjir eru"þessir"menn.Það vita allir að sendiboðarnir eru alltaf skotnir.En hvaða sterku öfl eru það í Þjóðfélaginu sem standa á bak við allt þetta.Öfl sem menn þora ekki fyrir sitt litla líf að segja til og vita sennilega ekki hverjir eru.

Ólafur Ragnarsson, 12.8.2007 kl. 02:32

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hér er orðið til undirheimaþjóðfélag glæpa fyrir framan augun á okkur og hluti af svokölluðu frelsi nútímans gsm símum viðheldur nákvæmlega þeirri hinni sömu starfssemi afar vel að ég tel.

Einföld lagabreyting frá hinu háa Alþingi kynni að breyta nokkru þess efnis að hver og einn sem skráir símanúmer sé skyldaður til þess að standa fyrir því undir nafni í símaskrá.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.8.2007 kl. 03:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband