Fjárfesting í hlutabréfum á færi hverra ?

Var að lesa pistil sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra sem ræðir það atriði að fjárfesting í hlutafé sé góð og gild sparnaðarleið. Gallin er sá að verkamaðurinn á vinnumarkaði hefur ekkert afgangs eftir skatta til fjárfestingar í slíku sökum skattlagningar hins opinbera á atvinnutekjur og mörk þau er menn hefja greiðslu skatta. Verkamaðurinn greiðir í lifeyrissjóði en getur ekki haft bein áhrif á í hverju þeir hinir sömu fjárfesta sem mögulega geta verið fyrirtæki sem greiða lág laun á vinnumarkaði sem varla þjónar hagsmunum þess hins sama. Sá hinn sami má hins vegar ef til vill mega þurfa að taka skerðingum af hálfu þeirra hinna sömu sjóða vegna tap í fjárfestingum sem slíkum , sem er óviðundani fyrirkomulag að mínu viti og þarf að skoða ofan í kjölinn fyrr en síðar.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Þetta dæmi er allt saman hið fáránlegasta, ríkisstjórnin er komin svo víðáttu langt frá öllum raunveruleika að mann skortir orðið orð til að reyna að staðsetja hana. Og þetta gambl lífeyrissjóðanna er náttúrulega fáránlegt, hvernig í ósköpunum getum við sem í sjóðina borgum borði ábyrgð á þessum verknaði? Ekki erum við spurð hvernig þetta skuli ávaxtað.

kv. Halli

Hallgrímur Guðmundsson, 6.8.2007 kl. 02:43

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er algjörlega sammála Hallgrími.  Eitt fer alveg óskaplega í taugarnar á mér, en Lífeyrissjóðirnir virðast komast upp með það að breyta bara lögunum um úthlutun eftir "behag" og þessi lög stangast iðulega á við landslög.  Eru Lífeyrissjóðirnir orðir ríki í ríkinu og geta þeir breytt og lagað til lög að vild?

Jóhann Elíasson, 6.8.2007 kl. 10:16

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Alþingismenn hafa verið of ragir við nokkra einustu endurskoðun á lagaramma kring um starfssemi lífeyrissjóðanna. Því miður enn sem komið er.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.8.2007 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband