Verðlagseftirlit í ógöngum eða hvað ?

Síðustu fréttir herma að stór verslanakeðja á lágvörumarkaði í landinu véfengi niðurstöður kannana á vegum verkalýðsmiðstýringarapparatsins ASÍ. og hefur af þeim sökum óskað eftir dómskvöddum matsmönnum til þess að koma málum á hreint varðandi verðlag í landinu. Fyrir mína parta get ég svo sem efast um það að það þurfi hagfræðing til þess að gera verðkannanir en var það ekki Guðmundur heitinn jaki sem talaði um " hagfræðingastóð " innan verkalýðshreyfingarinnar á sínum tíma ? Það er annars svolítið skondið að fylgjast með ASÍ þegar Samfylking er komin í ríkisstjórn og þegar Samfylking var ekki í ríkisstjórn en samtenging þessa bandalags við viðkomandi stjórnmálaflokk er eitthvað sem ég hefi gagnrýnt og mun gagnrýna hvað varðar ýmsa hluti sem ég tel óeðlilega tengingu við stórnmál.  Það atriði að við launþegar séum að kosta miðstýringu innan verkalýðshreyfingarinnar með þessu móti er eitthvað sem ég álít að sé tímaskekkja í nútíma samfélagi.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekki spurning í mínum huga að verkalýðshreyfingin er á villigötum og þarf að endurskilgreina fyrir hvað hún stendur og hver baráttumálin eiga að vera.  Að sjálfsögðu eiga hagsmunasamtök eins og ASÍ að vera ópólitísk, það ætti bara að vera grundvöllur fyrir starfsemi þeirra.  Það er þekkt að ASÍ-menn voru mun óbilgjarnari í samningum þegar hægri stjórnir voru í landinu en þegar vinstri stjórnir voru við völd.  Eru svona vinnubrögð boðleg?  Það þarf nú ekki hagfræðing til að gera verðkannanir eða reikna úr þeim en ég held að þarna sé um að ræða dæmi um það að verið sé að auka vægi einhverrar niðurstöðu með því að hagræðingar beri þær á borð.

Jóhann Elíasson, 20.7.2007 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband