Já Olli minn auðvitað daðrar ESB við Íslendinga, hvað annað !

Var það ekki þannig að ESB tókst að rústa fiskimiðin með afkastagetu fiskiskipa innan sambandsins með tilheyrandi vandræðagangi illindum og deilum innan sambandsríkjanna ? Þótt við Íslendingar séum í lægð í okkar fiskveiðum þá vantar okkur sízt meiri vandamál þar að lútandi hér enn sem komið er.

kv.gmaria.


mbl.is Olli Rehn: Umsókn Íslendinga um aðild að ESB yrði fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Já og engan gat grunað að svo væri fyrr en annað kom í ljós samkvæmt meintum kokkabókum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.7.2007 kl. 02:18

2 identicon

Það er ekki hagkvæmt fyrir okkur að ganga inn í Bandaríki Evrópu, verða þar peð og lúta stjórn manna með stórveldisdrauma.

Við erum lánsöm að eiga okkar eigið land - og líklega einhver gjöfulustu fiskimið í heimi á íbúa. Ekki skortir okkur vatn, orku og landrými.

Innganga í ESB mundi sjálfsagt lækka tolla og þar með verðlag, en þá yrði ríkissjóður bara að bæta sér það upp með hærri sköttum. Þegar upp væri staðið yrðum við eins sett og núna nema að við réðum okkur ekki sjálf - og margskonar vandamál sem hrjá ESB löndin mundu koma hingað í auknum mæli - að ekki sé nú minnst á kostnaðinn.

Við þurfum ekki að vera í ESB til að lækka tolla, koma á feðraorlofi, vinna að jafnréttismálum eða hvað nú hangir á önglinum hverju sinni. Þetta getum við allt gert sjálf. Við getum líka veitt fiskinn okkar sjálf og stýrt okkar eigin landbúnaðar-,heilsu-, og mennta-málum svo eitthvað sé nefnt.

Hamingja okkar er best tryggð með sjálfstæði, samstöðu þjóðarinnar og heilbrigðu sjálfstrausti og þjóðarstolti.

Baldur Ágústsson.

Baldur Ágústsson (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 03:43

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hjartanlega sammála þér Baldur.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.7.2007 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband