Fólkið í landinu og frásagnir , stórgóður þáttur Út og Suður.

Viðtalsþættirnir hans Gísla eru alveg frábærir og ég datt ofan í áhorf í kvöld þar sem viðmælandinn var bílasmiður á Ólafsfirði, dugnaðar og framkvæmdamaður með bjartsýnt viðhorf til lífsins. Þessi maður mælti þar spakastur manna að mínu viti varðandi það að börnin nú til dags fá ekkert að gera, það er allt bannað alveg sama hvað það er, þeim er hamlað að spreyta sig og útvíkka sjónarhorn sitt undir formerkjum þess að hættur séu fyrir hendi við hvert fótmál. Allt er afgirt og bannað sem eitthvað er spennandi, svo skiljum við ekkert í því að börnin finni eitthvað annað til að dunda sér við.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hann Gísli Einarsson nálgast hlutina mög skemmtilega og er mjög "lunkinn"að finna skemmtilega viðmælendur.  Ég missi helst ekki af þáttunum hans.

Jóhann Elíasson, 17.7.2007 kl. 21:08

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já þessir þættir eru það helsta sem horfandi er á í sjónvarpi sumarsins.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.7.2007 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband