Sannleikurinn þarf ekki að ganga yfir öfgalandamæri.

Það er hægt að tala sannleikann hreint út án þess að kasta eggjum til þess að reyna að auka máli sínu stuðning sem það ekki gerir. Með öðrum orðum íslenska málið er auðugt af orðaforða og við eigum ekki í vandræðum með að vinna málum okkar brautargengi án þess að þurfa að ganga út yfir þjófabálka eða reyna að drekkja málstaðnum við einangrað sjónarhorn á eitt mál umfram öll önnur sem hefur verið allt of viðtekin venja í voru samfélagi til lengri og skemmri tíma. Við þurfum heldur ekki að meðtaka það sem eitthvað sjálfsagt og eðlilegt að yfir okkur vaði fólk sem hvorki mælir á voru máli eða hefur lifað í landi voru til þess að mótmæla hér á landi. Lágmarkskrafa er að viðkomandi sé búsettur í landinu og vilji sá hinn sami mótmæla hlýtur að vera hægt að gera það innan marka laga sem gilda í landinu.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sammála, það er lámarks krafa að þeir sem þurfa að mótmæla fari eftir lögum þessa lands. Einnig finnst mér það alveg rétt að þeir sem ekki eru búsettir á Íslandi geti einfaldlega mótmælt og rifið kjaft í sínu heimalandi.

Hallgrímur Guðmundsson, 16.7.2007 kl. 03:08

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Algjörlega þessir erlendu aðilar sem eru að koma til að mótmæla ættu að kynna sér landslög og fara eftir þeim.  Ekki að skýla sér á bak við  eitthvað "karnival" (Höfðu þau leyfi fyrir karnivali).

Jóhann Elíasson, 16.7.2007 kl. 15:38

3 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Hæ Guðrún María og takk fyrir síðast. Stendur ennþá til að koma til Eyja í ágúst?

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 16.7.2007 kl. 23:38

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hæ aftur.

Veit ekki alveg ennþá, á eftir að heyra í kellunum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.7.2007 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband