Þurfum að bjóða Framsóknarmönnum á fræðslunámskeið.

Við í Frjálslynda flokknum þurfum endilega að uppfræða Framsóknarmenn um annmarka kvótakerfsins svo sem best getum það það er nokkuð ljóst að þeir hafa setið svo lengi við stjórnvölinn að það tekur tima að komast út úr því hlutverki að guma af ágæti allra hluta, sem forsvarsmenn. Það er hins vegar ekki víst að Guðni hafi lagt ofuráherslu á það atriði að það væri einföldun að kenna kerfinu um heldur virðist Mogginn grípa það upp sem fyrirsögn frásagnarinnar.

kv.gmaria.


mbl.is Einföldun að kenna kvótakerfinu um segir Guðni Ágústsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað hefur formaður Framdóknarflokksins og beljukyssir, Guðni Ágústsson ekki hundsvit á sjávarútvegsmálum, þó hann sé búinn að vera 16-20 ár á þingi. Hann er búinn að bakka upp mestu óþurftar menn, sem hafa haft með sjávarútvegsmál að gera þ.e. Halldór Ásgrímssom - Þorstein Pálsson og Árna dýralækni, sem í sameingu eiga heimsmet í heimsku í sjávarútvegsmálum. Og núverandi sjávarútvegsráðherra er að reyna að komast í þann flokk.

Núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi er ömurlegt að mestu leiti og dæmt til að mistakast, þó LÍU segi annað vegna hagsmunagæslu.

Auðvitað get ég tætt þetta kerfi í niður í ömurleikann, en það þarf langan pistil í slíkt. Því ætla ég að að aðeins að segja frá einu afmörkuðu sviði, sem ekki hefur verið í umræðunni.

Flottroll er gríðarlegur skaðvaldur. ef það er misnotað. Árið 2001 í seinni hluta nóv.(vona að ártalið sé rétt ) kom glæsifleygið INGUNN AK til Akranes með 700 tonna síldarfarm, sem var allur unnin í frystinu. Byrjað var að land um hádegi á laugardegi og mættu þá 2-3 aular frá Fiskistofu og stoppuðu í ca 10 mínútur og gáfu grænt ljós á aflan og löndunina, síðan sáust þeir ekki meir, en hafa örugglega náð að skrifa 8 tíma á sig. Þessi löndun tók 2 sólarhringa og í restina kom skelfingin í ljós - ca 30 - 40 tonn af 10 gr seiðum - þorsk, ýsu og lísu seiðum. ( Hver vill margfalda )Síðan var meðafli ca 25 tonn af ufsa, þorski, grásleppu og fl. og ekkert kvóta rugl.

Þetta var bara ein veiðiferð, er það nema von að þeir klóri sér í hausnum á Hafró.

kveðja.

Fronsi (IP-tala skráð) 11.6.2007 kl. 05:24

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Þú ert að kafna úr bjartsýni það er vonlaust að kenna gömlum hundum nokkurn skapaðan hlut.Það þarf fyrst að endurnýja allan flokkinn og heilaþvo svo þá sem eru svo skemmdir að taka við af gömlu hundunum.............

Hallgrímur Guðmundsson, 11.6.2007 kl. 16:35

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Hallgrímur.

Betra vera bjartsýn en svartsýn ekki satt ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.6.2007 kl. 23:38

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það er eina sem heldur manni gangandi,það er gargandi bjartsýni af bestu gerð...

Hallgrímur Guðmundsson, 12.6.2007 kl. 02:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband