Forstjóri Hafrannsóknarstofnunar hafnar öðru en eigin vísindum.

Forstjóri Hafró var í hádegisviðtali í dag þar sem það kom fram í máli hans að eina lausin væri að minnka veiðar. Ég varð ekki vör við að það kæmi fram í þessu viðtali hve mikið sitjandi stjórnvöld á hverjum tíma síðustu tuttugu ár hefðu gengið á skjön við tillögur Hafrannsóknastofnunar um veiðar , hvað varðar heildarmagn. Ef farið hefur verið eftir hinni vísindalegu ráðgjöf allan þennan tíma er þá ekki eitthvað að við vísindaaðferðirnar eða kerfið sjálft ? Ég man ekki betur en farið hafi verið eftir tillögugerð Hafrannsóknarstofnunar í þorskveiðum, nokkurn veginn, það tímabil sem hér um ræðir. Hins vegar á hið sama kanski ekki við um loðnuveiðar ? Ég man samt ekki eftir því að hafa heyrt Hafrannsóknarstofnum tala og tjá sig hátt um slíkt nokkurn tíma. Það hlýtur eigi að síður að vera hlutverk stofnunarinnar að vara við því ef stjórnvöld fara ekki að tillögugerð hverju sinni, sem vísindastofnunnar , eða hvað ?

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Keli.

Ég myndi nú frekar orða það grunnhyggni með vísun í skort að tekið sé tillit til allra þátta.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.6.2007 kl. 01:27

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Hvað er að fréttamanninum að sleppa mann aumingjanum svona auðveldlega?Hverslags helvítis hræsni er í gangi þeir segjast taka tillit til og hlusta á sjómenn og aðra fræðinga meira segja stærir sig af einhverjum andskotans fundum á hverju ári með skipstjórum og öðrum hagsmunaaðilum.Það er einkennilegt að hann skildi ekki vera látinn  svara því afdráttarlaust hvernig til hafi tekist hjá okkur og öðrum löndum sem stýra öllu með eintómum niðurskurði.Einfaldlega sagðist ekki vita það almennilega.Helvítis lýi og ekkert annað.Það er greinilegt að þeir gera ekkert annað en hlusta ef þeir þá á annað borð gera það og síðan rýna þeir í ekkert annað en eigin handónýtu fræði og aðrir eru snarruglaðir eiginhagsmunarhálfvitar.Og að láta það út úr sér að það taki bara nokkur ár að laga allt saman ef við drögum úr veiðum á þorski er þvílíkt rugl að annað eins er vandfundið.Hvað hefur verið gert síðan þetta helvítis kvótakerfi var fundið upp?Og að leggja það á borð fyrir mig að hlustað sé á skipstjóra og mark tekið á því sem við höfum að segja er sú svakalegasta hræsni sem ég hef lengi heyrt.Þeir hlust eingöngu á málflutning þeirra sem tala fyrir Líú og stórkvótaeigenda kúgaðir áfram til hlýðni annars verði þeir reknir svo einfalt er það.

Hallgrímur Guðmundsson, 11.6.2007 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband