Launahækkanir Seðlabankastjóra eru hneyksli núverandi ríkisstjórnar.

Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að núverandi ríkisstjórn samþykki þær launahækkanir sem stendur til að viðhafa í Seðlabankanum. Það getur ekki verið að launahækkanir til handa Seðlabankastjórum séu nauðsynlegri en hækkun skattleysismarka á láglaunafólk hér á landi sem lepur dauðann úr skel við ofurskattöku á allt of lág laun. Ég kalla á forsendur fyrir þessum hækkunum.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Gísli Marteinn sagði í kastljósi að þetta væri nauðsynlegt svo einhver vildi vinna í Seðlabankanum. Sennilega er þetta algjört skítajobb, svona eins og að hreinsa rotþrær, enda hefur hlutverk Seðlabankans verið það undanfarið gagnvart þenslupólitík ríkisstjórnarinnar.

Gunnar Skúli Ármannsson, 10.6.2007 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband