Það er alvarleg þróun ef afskipti auðmanna af kjöri til Alþingis eru í krafti auðs.

Þegar loksins hefur tekist að setja löggjöf um bókhald stjórnmálaflokka hér á landi þá sjást nýjar birtingamyndir að virðist, varðandi áróður hagsmunaaðila er beita áhrifum sínum í krafti auðs gegn einhverjum sem þeim líkar ekki sem og ábendingu á þá sem þeir vilja sjá við völd. Hér er um alvarlega þróun að ræða og mér reyndar óskiljanlegt að menn skuli ekki velta meira fyrir sér en raun ber vitni. Það gefur augaleið að engum er akkur að því að réttarkerfi eða dómsstólar séu rifnir niður í einu landi og ráðherra málaflokksins gerður persónulega ábyrgðarmaður fyrir ákvörðunum hvers konar gagnvart aðilum er koma þar til eftirlits ellegar meðferðar hjá dómsstólum því eitt skyldi yfir alla ganga auðmenn jafnt sem aðra og ef einhver telur sig órétti beittann ellagar lotið hafa offari í formi stjórnvaldsákvarðana þá er þess hins sama rétttar að leita fyrir dómsstólum og í réttarkerfinu. Þar getur Jón Jónsson ekki auglýst fyrir kosningar sjálfum sér til handa heilsíðuauglýsingar í dagblöðum af sínum verkamannalaunum og því skyldi slíkt teljast eðlilegt af hálfu forsvarsmanna stórfyrirtækja ?

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grétar Pétur Geirsson

Þetta er rétt hjá þér María. Þetta er gert í krafti auðs sem skilaði Sjálfstæðisflokknum þeirri niðurstöðu sem blasir við. Ólafur að gera lýðræðinu greiða í valdi peninga sem beinist að ákveðnum einstaklingi á ekkert skilt við lýðræði í mínum huga. Í mínum huga snýst lýðræðið um það að allir hafi jafnan rétt á að tjá sig,en kaupi sér ekki þann rétt í krafti auðs sem þessar niðurstöður glögglega sína

Grétar Pétur Geirsson, 18.5.2007 kl. 18:24

2 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er góð hugleiðing hjá þér Guðrún María. Væri ekki ráð hjá okkur að hafa málþing um lýðræði og peninga.  Varðandi auglýsingu Jóhannesar þá er ég sannfærður um að hún færði Sjálfstæðisflokknum mörg atkkvæði  og tók með því a.m.k. einn þingmann frá okkur.

Jón Magnússon, 18.5.2007 kl. 23:39

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Mér líst vel á það að hafa málþing um lýðræði og peninga, ættum sannarlega að gera það sem fyrst.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.5.2007 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband