Skattkerfið og tekjutengingar, skyldi þurfa að taka til ?

Þeir aðilar sem koma til með að mynda starfhæfan meirhluta við stjórnvölinn munu þurfa að sýna fram á eitthvað annað en þyngstu byrðar á tekjulægstu hópana sem skattapólítik. Skattkerfið er stjórntæki hvað varðar réttláta byrði þáttöku í sköttum af hálfu einstaklinga og fyrirtækja í landinu og örugglega. Um réttlæti í því efni hefur ekki verið að ræða í stjórnvaldsaðgerðum undanfarin rúman áratug hér á landi, því stjórnvöld frystu skattleysismörkin og aftengdu verðlagsþróun, en hafa aldrei verið krafin útskýringa á nauðsyn þess hins arna, enn sem komið er. Komi ekki til breytinga á skattkerfinu er næsta víst að hvers konar fjölskyldugerð kann að þurfa að stofna ehf. félag um sinn heilmilsrekstur þar sem rekstarmarkmiðin eru þáttaka í þjóðfélaginu sem grunneining.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grétar Pétur Geirsson

Sæl

Það var sárt að ná ekki Kolbrúnu inn og Magnúsi en það sem er jákvætt er að Kristinn Gunnarsson náði inn og við héldum okkar fylgi Nú þurfum við að bretta upp ermar og fara í gegnum okkar mál við munum mæta tvíelfd eftir fjögur ár 

Grétar Pétur Geirsson, 14.5.2007 kl. 13:29

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Grétar Pétur.

Við urðum að bíta í það súra epli að missa Kolbrúnu út sem og Magnús og Sigurjón, en það atriði að halda fylginu og fá þingmann inn á höfuðborgarsvæðinu  Jón Magnússon í Reykjavík verður að teljast sigur fyrir okkar flokk.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.5.2007 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband