Eru "píkusögur" klám ?

Var að lesa um einhvern ´gífurlegan fjölda kynsystra minna sem ætla að lesa " pikusögur " hér og þar en því miður er ég ein af þeim sem aldrei hef farið á slíkan lestur enn sem komið er . Orðið eitt og sér í íslensku máli heillar mig ekki sem slíkt, og ég tel reyndar nokkuð afstætt hvað varðar klám og þá skilgreiningu sem menn vilja bera á borð fyrir almenning í því efni.

Kanski er ég ein um þá skoðun , veit ekki.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Píkusögur eru langt frá því að vera klám. Mæli eindregið með því að þú farir og hlustir á lestur úr þessu verki. Mjög áhrifamikið. 

Heiða B. Heiðars, 16.3.2007 kl. 02:19

2 Smámynd: Ólafur fannberg

innlitskvitt

Ólafur fannberg, 16.3.2007 kl. 08:43

3 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er alltaf spurning um skilgreiningar. Vafalaust hefði þetta verið skilgreint sem klám fyrir nokkrum árum. Hitt er annað að það er margt sem manni finnst þjóðfélagslega óæskilegt sem verður að þola til að koma í veg fyrir að þrengt sé að frelsinu. Þess vegna hefur m.a. einn helsti spekingur frjálslyndis skrifað grein sem heitir. "Af hverju ganga ritfrelsi og klám hönd í hönd" Niðurstaða hans er sú að með  því að banna og koma með mjög þröngar siðferðilegar skilgreiningar þá sé hætta á að þrengt verði að ritfrelsinu. Kveðja, Jón Magnússon

Jón Magnússon, 16.3.2007 kl. 09:46

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Veit það hreinlega ekki Gmaría mín ætlaði bara að segja HÆ!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2007 kl. 16:40

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hæ Cesil mín, gaman að sjá þig sem bloggvin.

Takk fyrir innlitið Hanna Birna.

Já Jón, sennilega er það alveg rétt að maður verður að þola frelsið he he...

Heiða.

Ef til vill, en er þessi þýðing ekki þannig að " pige " er þýtt " píka " á íslensku ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.3.2007 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband