Það kostar TVÖ HUNDRUÐ OG ÁTTATÍU að ferðast með almenningssamgöngum.

Þurfti að taka Strætó heim í dag milli bæjarhverfa í Firðinum og viti menn , tvö hundruð og áttatíu gullkrónur kostaði ferðin. Í fljótfærnislegum útreikningi í huga mínum komst ég að þeirri niðurstöðu að ég kynni að hafa getað farið fimm ferðir á mínum annars sparneytna bíl sömu vegalengd. Hvað eru menn að hugsa ????????? Ef það er hagkvæmara að vera á einkabíl , fyrir einn mann en að nota almenningssamgöngur , hverjum dettur í hug að notkun þeirra kunni að aukast ? Í fyrra kostaði fargjaldið 220 og ég hefi víst misst af því að það hafi hækkað í 280.-

Það er ekki öll vitleysan eins heldur aðeins mismunandi.

kv.gmaria.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband