Hörmulegur atburđur, hvađ ţarf til ađ hafa yfirsýn yfir málefni veikra einstaklinga í voru samfélagi ?

Ég votta ađstandendum mannsins sem lést innilega samúđ mína sem og lögreglunni hér á landi.

Raunin er sú ađ úrrćđi gagnvart einstaklingum sem hafa tvenns konar sjúkdómsgreiningu, annars vegar geđrćn vandamál og hins vegar fíkn, eru vćgast sagt af skornum skammti í voru samfélagi ţar sem tilhneiging kerfisskipulagsins er sú ađ reyna ađ flokka ţessi vandamál í sundur í formi úrlausna hvers konar í stađ ţess ađ takast á viđ heildaryfirsýn yfir vandann sem slíkan.

Ţegar afskipti lögreglu af málum veikra einstaklinga koma til sögu  í fyrsta skipti ţarf ađ fara í gang ferli sem inniheldur net samvinnu félags og heilbrigđismála ásamt ađstandendum, net ţar sem samvinna og samhćfing ţessara ađila gagnvart  viđkomandi einstaklingi er fyrir hendi, varđandi lyfjagjöf og varđandi stöđu viđkomandi frá tíma til tíma rétt eins og heimaţjónusta til handa öldruđum.

Mikilvćgi samvinnu sem slíkrar getur skipt miklu máli um yfirsýn í málefnum einstaklinga sem oftar en ekki kunna ađ vera félagslega einangrađir og fárveikir og kanski tímaspurning um hvernig viđkomandi rekst á sitt samfélag.

Svo mörg eru ţau orđ.

 

kv.Guđrún María. 


mbl.is Fariđ verđur yfir ađgerđir lögreglu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband