Hér gefur að líta gagn til dóms til riftingar á húsaleigusamningi.

SWScan00221

 Ég mætti í dóm þann 16. júli sl. þar sem efnið var riftun húsaleigusamnings við mig, og forsenda dómshaldsins var þetta skal sem lagt hafði verið inn í dóminn af hálfu fulltrúa stjórnvaldsaðila til riftunar.

 

Mótmæli mín í dómi þess efnis að nú þegar hafi verið búið að rifta við mig samningi þessa efnis, og endurtekning sömu gjörðar í þvi efni væri eitthvað sem ekki þyrfti að viðhafa ,urðu mér best skiljanlega tilefni frestunar málsins til 10 sept. næstkomandi þar sem mér er gert aðl leggja fram greinargerð.

 

Ég hefi lagt inn stjórnsýslukæru á framkvæmd mála sem vísað hefir verð til Úrskurðarnefndar um félagsþjónustu og húsnæðismál á vegum innanríkisráðuneytisins og bíð niðurstöðu þaðan sem óvíst er að ljúki áður en dómshald kemur til þann 10 sept.

Þangað til er ég í  algerri óvissu um framgang mála en engin viðbrögð hefi ég fengið frá nokkrum kjörnum fulltrúa hér í mínu sveitarfélagi, varðandi viðtal um þennan framgang, engin enn sem komið er.

Sé það svo að hægt sé að leggja inn plögg í dóm til riftunar á samningi með einhliða undirskrift annars samningsaðila þá er illa komið.

Ég spyr að leikslokum í þessu máli.

 

kv.Guðrún María. 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ótrúlegur yfirgangur Gmaría mín, gangi þér vel með þetta mál.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2012 kl. 18:06

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Takk fyrir það Cesil mín.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.8.2012 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband