VG, hundsaði eigin stefnuskrá við stjórnarmyndun.

Það verður ekki auðvelt hjá forystumönnum Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs að reyna telja fólki trú um að svart sé hvítt og hvítt svart fyrir næstu kosningar hafandi gengið fram með stefnuskrá um andstöðu við aðild að Evrópusambandi fyrir kosningar og síðan hafið stjórnarsamstarf á því að semja um aðildarumsókn til þess að sjá " hvað væri í boði ".

Hvers konar hugleiðingar nú á þessum tímapunkti um " vaxandi áhuga á endurskoðun" heitir of seint, ekki hvað síst þar sem tíma og peningum hefur verið eytt út í loftið einu sinni enn hér á landi, í eitthvað sem fyrirsjáanlegt mátti vera að væri í andstöðu við meirihluta þjóðarinnar.

Frá mínum sjónarhóli séð hefur aðeins einn þingmaður sem kosinn var á Alþingi Isendinga fyrir VG, í síðustu kosningum staðið fyrir stefnu þeirri sem flokkurinn gaf út fyrir kosningar, og hann heitir Jón Bjarnason.

kv.Guðrún María.


mbl.is Vilja endurskoða ESB-umsóknina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hmm...

Ætli það séu að koma kosningar ?

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 12.8.2012 kl. 02:07

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já þess orð Katrínar um að vaxandi áhugi sé á endurskoðun ESB umsóknarinnar er ekkert annað en klór í bakka og greinilegt að það er að koma kosningarskjálfti í VG....

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 12.8.2012 kl. 08:00

3 Smámynd: Sandy

En er ekki alveg makalaust þegar þetta fólk er að tala eins og meirihluti þjóðarinnar hafi frá upphafi viljað fara inn í ESB? Heigulshátturinn var svo mikill að það mátti ekki fyrir nokkurn mun setja málið í þjóðaratkvæði, hvers vegna?

Sandy, 12.8.2012 kl. 09:12

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Sandy sjálfsagt hefur óttinn við það að Þjóðin sé ekki samstíga ráðið för, og er það ljótt þegar staðan er orðin þannig að grípa til lygarinar þykjir betra en fara eftir vilja meirihluta þjóðarinnar, það sem verra er, er að þegar það er gripið til lygarinnar þá er ekki bara verið að blekkja þá utan eru, heldur er manneskjan sjálf sem lýgur að ljúga að sjálfri sér og ekki að geta horfst í augu við raunverulega stöðu...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 12.8.2012 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband