Íslendingar eru kristin þjóð og stjórnarskrá skyldi endurspegla, það hið sama viðhorf.

Ég tel það mjög mikilvægt að stjórnarskráin innihaldi ákvæði um þjóðtrú í einu landi, en það atriði að hafa þjóðtrú er spurning um sjálfsvitund einnar þjóðar og skiptir miklu máli.

Þótt alls konar merki um siðgæðishnignun hvers konar hafi komið til þar sem þjóðkirkjan hefur mátt þurfa að þola sinn skammt af slíku, þá stendur eftir og standa mun sá boðskapur sem kristin trú inniheldur með umburðarlyndi fyrir þeim sem hafa aðra trú ásamt staðfestu um þá vitund um siðgæði sem kristin trú inniheldur til handa vorri þjóð.

Hvers konar meintur " liberalismi " sem vill taka kristna trú út úr stjórnarskrá er einfaldlega vanhugsað frá upphafi til enda.

kv.Guðrún María.


mbl.is Gunnlaugur Stefánsson: Kirkjan og þjóðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Guðrún María. Við féllum öll á náungakærleiks-prófinu og réttlætis-siðferðisprófinu. Þar með féll kristni-kirkju-boðskapurinn falski, í allri sinni fölsku og misnotuðu "dýrð". Það er okkur öllum hollt að horfast í augu við staðreyndirnar og viðurkenna mistökin, til að komast áfram.

Ég tek það fram að ég er mjög trúuð, en ég er ekki trúuð á falskan boðskap, sem er notaður sem svipa á almenning í valdastríðs-tilgangi.

Það hefur lengi háð mér, að finna ekki heiðarlegan farveg fyrir raunverulega náungakærleikstrú, án pólitískra trúarflokka.

Raunverulega trú er ekki mögulegt að flokka, því hún er yfir slíkan meting hafin.

Þeir eru trúaðastir sem ekki trúa á trúar-BRÖGÐ.

TRÚIN ER ÓHÁÐ ÖLLUM SVIKABRÖGÐUM, OG ÞARF EKKI FLOKKAÐA MILLIGÖNGUMENN!

þETTA VISSI NELSON MANDELA, ENDA SIGRAÐI HANN MEÐ SINNI SÖNNU TRÚ Á NÁUNGAKÆRLEIKANN OG AUÐMÝKTINA, SEM SITT STERKASTA VOPN.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.3.2012 kl. 23:30

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Anna.

Það er þín skoðun en mín er þegar framsett.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 4.3.2012 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband