Lára Hanna tíður gestur í þáttum Egils um tíma.

Fór að skoða þetta myndband sem hér um ræðir og þvílíkir aulabrandarar sem þar er um að ræða, og hvorutveggja þeim sem það framleiða sem og þeim sem benda á það hið sama, ekki til framdráttar málefnalega á nokkurn hátt.

Meint barátta Láru Hönnu gagnvart " hruninu " er eitthvað sem ég hefi ekki verið þess umkominn að skilja, og mér fundist hún dansa vangadans við núverandi ríkistjórnarflokka meira og minna, sem ef til vill er sýnilegt í þessari myndbandsgerð.

Egill þarf að hugsa sinn gang áður en hann linkar út í loftið.

kv.Guðrún María.


mbl.is Benti einungis á myndbandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ég er nú ekki að ná þessu. Var það Hanna Lára sem gerði þetta myndband eða eru þetta tvö óskyld mál?

Vigdís er nú mjög spes og það hljóta Framsóknarkonur að vita en auðvitað engin ástæða til að leggja hana eða aðra í einelti út af því ;) kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 9.10.2011 kl. 03:14

2 identicon

Barátta Láru Hönnu er brandari út af fyrir sig.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.10.2011 kl. 09:15

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kolbrún þetta er sama málið, Lára Hanna setti myndbandið saman og Egill linkaði á það.  Þetta hvort tveggja er afar lágkúrulegt að mínu mati og þeim báðum til skammar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.10.2011 kl. 10:04

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Eins og talað frá mínu hjarta, Guðrún María, þegar þú segir:

"Meint barátta Láru Hönnu gagnvart " hruninu " er eitthvað sem ég hefi ekki verið þess umkominn að skilja, og mér fundist hún dansa vangadans við núverandi ríkistjórnarflokka meira og minna, sem ef til vill er sýnilegt í þessari myndbandsgerð."

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.10.2011 kl. 10:36

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sammála þetta var lákúrulegt hjá Láru Hönnu og Agi Helgasyni

Óðinn Þórisson, 9.10.2011 kl. 11:21

6 Smámynd: Gunnar Waage

Ég er þér alveg sammála, Lára Hanna getur náttúrulega búið til hvaða grín sem er og í góðu lagi mín vegna, ég tek þó undir að ég hef aldrei skilið neitt af þvi sem hún skrifar. Hún er fyrst og fremst áróðurspenni sem fer illa með heimildir, slítur þær úr samhengi og skrumskælir í áróðursskyni. Hún og Egill eru atvinnubloggarar, það út af fyrir sig er sjúkt og algjör lákúra.

En það að Egill skuli á bloggi sínu, sem ber sömu yfirskrift og sjónvarpsþáttur hans á RUV, dirfast að gera ekki lágmarkstilraun til að halda skrifum sínum hlutlægum, er ömurlegt.

Gunnar Waage, 9.10.2011 kl. 22:13

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl öll og þökk fyrir innlitið og ykkar innlegg.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.10.2011 kl. 00:10

8 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ég hef ekki séð þetta blessaða myndband og þessi kona hefur ekki verið í neinu uppáhaldi hjá mér ef það er sú sama og fékk einhverja viðurkenningu fyrir störf sín sem bloggari hér áður fyrr.

Sú vildi fá framlög frá þeim sem læsu bloggið til að framfleyta sér :) kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 15.10.2011 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband